Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen
Árstíðarverur eftir Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen er einstaklega vel heppnuð myndrík barnabók sem sameinar fræðslu, sköpunargleði og hjartahlýju.
Sagan af Bjarna, sem vaknar einn vormorgun við snjóþunga jörð þvert á væntingar og fræðslu í skólanum, fangar strax athygli unga lesandans og kveikir forvitni. Í frumlegri og aðgengilegri frásögn, sem hvílir jafnt í máli og myndum, er veðurfari og árstíðum á Íslandi gefið sviðið. Bókin er ekki aðeins fræðandi heldur einnig hlý og mannleg. Hún endurspeglar reynslu kynslóða sem alist hafa upp við síbreytilega íslenska veðráttu og vekur bæði bros og samkennd.
Árstíðirnar birtast Bjarna sem kúnstugar verur sem rífast um stjórn veðursins og verða þannig lifandi framsetning á flóknu og oft óútreiknanlegu íslensku veðri. Ólíkar árstíðir birtast, í myndrænni framsetningu Linn Janssen, klæddar mismunandi gróðri og haustið ber gleraugu sem minna óhjákvæmilega á lestur og upphaf skólans.
Þessi persónugerving árstíðanna, sem bera nöfnin Sumar, Vetra, Vora og Hausti, skapar sterka tengingu milli ímyndunarafls og raunveruleika og styður um leið við fræðslu á leikandi hátt. Andstæðurnar Sumar og Vetra eiga í deilum en milli-árstíðirnar Hausti og Vora reyna að miðla málum með litlum árangri.
Rétt áður en Bjarni hittir árstíðarverurnar hefur hann setið kennslustund þar sem krakkarnir keppast við að telja upp mismunandi kosti hverrar árstíðar. Þetta tekur Bjarni með sér þegar hann hittir verurnar. Hann hrósar þeim öllum fyrir sína eiginleika og sannfærir þær um að það skipti ekki öllu máli hver sé við stjórn, en það sé mikilvægt að skiptast á.
Sums staðar í heiminum er veðrið svipað allan ársins hring. Á Norðurlöndunum eru skipti árstíðanna hins vegar skýr og gjarnan talað um að þær hafi áhrif á líðan fólks. Á Íslandi er bjart allan sólarhringinn á sumrin en veturinn einkennist af myrkri. Veðurfar getur breyst á örskotsstundu og plönin þar með líka. Þá skiptir hugarfarið mestu máli og það er umfjöllunarefni þessarar sögu. Því þótt rökræn niðurstaða skóladrengsins Bjarna sé einföld – að best sé að skiptast á – þá hefur honum tekist að sætta náttúruöflin, með virkri hlustun og góðum ráðum. Á þann hátt er bókin líka valdeflandi fyrir börn sem standa valdalítil frammi fyrir stórum og oft óskiljanlegum heimi.
Diljá Hvannberg Gagu (f. 1994) er barnabókahöfundur og verslunarstjóri hjá bókaverslun Pennans Eymundsson. Hún hefur skrifað sögur allt frá barnsaldri en Árstíðarverur er hennar fyrsta barnabók.
Linn Janssen (f. 1997) er myndhöfundur sem útskrifaðist frá Myndlistaskólanum í Reykjavík árið 2022. Linn hefur myndlýst fjölda barnabóka, þar á meðal Einstakt jólatré, sem var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2024.