Pirkko Saisio

Ljósmyndari
Laura Malmivaara
Pirkko Saisio: Suliko, skáldsaga, Siltala, 2024. Tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026

Skáldsagan Suliko (hefur ekki komið út á íslensku) er skálduð ævisaga einræðisherrans Jósefs Stalín (1878–1953). Titillinn vísar í ástarsöng með ljóði eftir Akaki Tsereteli við lag Varinku Tsereteli. Orðið „suliko“ kemur úr georgísku og merkir sál. Í ljóðinu er það einnig nafn þess ástarviðfangs sem Stalín þráir og tilbiður í einsemd sinni. 

Atburðarásinni vindur fram eftir tveimur tímalínum. Hluti sögunnar er sagður í ævisögulegu endurliti hins alvitra sögumanns; hluti í fléttukenndri framsetningu Stalíns sjálfs þar sem ofsóknaræðið fer stigvaxandi. Sá þráður hefst á nýársnótt 1953 með öskubragði í munni og teygir sig fram til tímabilsins rétt eftir dauða Stalíns. Gegnum alla frásögnina beinir hann orðum sínum til Suliko.

Eftirfarandi einkunnarorð standa fremst í bókinni: „Þar sem guð er ekki til bjó ég til guð. Handa mér / Og úr mér / Einhver þarf að fórna sér.“ Goðsögum og ævintýrum er snemma fléttað inn í frásögnina, til dæmis með umorðuðum tilvitnunum í Biblíuna. Þetta er ein af mörgum leiðum höfundarins til að gera myndina af aðalpersónunni enn margslungnari. Og oft er það gert í sáttatóni. 

Texti Saisio er hárbeittur en einnig skynrænn. Lýsingar hennar eru svo ríkar af smáatriðum að lesandanum líður eins og sjónarvotti, hann finnur lykt og bragð, heyrir hljóðið í verksmiðjuflautunum og hestana skrapa hófunum eftir þilfarinu þegar gufubáturinn Oihonna strandar úti fyrir Hankoniemi.

Í Suliko er lesandanum boðið upp á taugatrekkjandi og ögrandi, allt að því svikula lestrarupplifun í myrkri og fálmkenndri birtu, þar er hljóðlátt fótatak fyrir utan dyrnar og sívaxandi hrúgur af ólesnum skjölum, grunsamlegir skósveinar og brotin fjölskylda þar sem faðirinn fórnar syninum (!) og er ástfanginn af ímyndun. Hægt er að fullyrða að efnislega eigi bókin fullt erindi við samtímann – því miður.

 

Pirkko Saisio (f. 1949) er einn merkasti höfundur finnskra samtímabókmennta. Ferill hennar sem rithöfundur, leikstjóri, leikkona og kennari við leiklistarskólann í Helsinki spannar yfir fimm áratugi. Hún er margverðlaunaður höfundur og hefur meðal annars hlotið Finlandia-verðlaunin 2003 fyrir hið sjálfsævisögulega verk Punainen erokirja („Rauða skilnaðarbókin“) og Vartio-verðlaunin árið 2025. Fyrir Suliko hlaut hún hin virtu Runeberg-verðlaun árið 2025.