Sebastian Johans

Ljósmyndari
Pär Fredin
Sebastian Johans: Svanhopp. Roman om död far, skáldsaga, Nirstedt/litteratur, 2025. Tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026

Í Svanhopp. Roman om död far („Svanahopp. Skáldsaga um látinn föður“, hefur ekki komið út á íslensku) eftir Sebastian Johans kynnumst við föður sem ekki var allskostar hefðbundinn. „Hann var ekki þessi borgaralegi pabbi sem talaði um tennis og sá son sinn ekki sem einstakling sem lifði sjálfstæðu lífi,“ er slegið föstu strax í byrjun.

Faðir sögumanns er gáfaður og kraftmikill maður, en getur ekki látið eigið daglega líf ganga upp. Hann flytur inn í íbúð eftir skilnaðinn frá móður sögumannsins en tekst aldrei að láta hana líkjast venjulegu heimili. Hann sveiflast stöðugt á milli vonar og örvæntingar, bjartra stunda og dimmra, neyslan magnast, klikkunin æðir áfram, hinn stóri líkami vex og verður æ stærri. Hann vorkennir sjálfum sér, finnst hann misskilinn af umheiminum, er kvíðinn yfir því að verða mislukkaður faðir.

Hér er þó ekki verið að velta sér upp úr eymd; skáldsaga Johans er langt frá hinu bókmenntalega föðurmorði sem hefur verið áberandi í norrænum bókmenntum undanfarin ár. Þess í stað er Svanhopp afar næm og glögg lýsing á föður með stórt hjarta, nánast yfirfullt af ást: „Það fyrsta sem ég hugsa þegar ég heyri að þú sért ekki lengur til er að enginn muni nokkru sinni elska mig eins og þú,“ rifjar sonurinn og sögumaðurinn upp. 

Af mikilli leikni, án þess að láta of mikið uppi, lýsir Sebastian Johans einmitt þessu: að það er fleiri en ein leið til að elska, til að vera foreldri. Að mæta óboðinn í unglingapartí sonarins og sýna krökkunum hvernig á að blanda saman víni, vatni og múltuberjalíkjör til að halda ölvuninni alveg mátulegri virðist kannski ekki mjög traust. En svona fer faðirinn að því að sýna umhyggju, þetta er hans sérstaka leið til að vera til staðar og kenna syninum eitthvað og um leið sjá soninn sem einstakling sem lifir sjálfstæðu lífi: „auðvitað vill maður drekka ef maður er ungur“.

Auk þess að lýsa föðurnum er Svanhopp einnig falleg uppvaxtarsaga. Með stuttum senum og af miklu öryggi bregður Johans upp myndum af bernsku- og unglingsárum í litla höfuðstaðnum Maríuhöfn á Álandseyjum á 9. og 10. áratugnum; að því er virðist hversdagslegum atburðum sem í endurliti verða þrungnir merkingu og mikilvægi. Þetta er áhrifamikið og býður heim samsömun við frásögnina þegar svipmyndum af eigin uppvexti skýtur upp í huga lesenda með bókmenntalegum útlínum – jafnvel þótt þeir hafi varið uppvaxtarárunum einhvers staðar allt annars staðar. 

Þessi endurlit skiptast með áhrifamiklum hætti á við senur úr nútíðinni, þar sem hinn fullorðni sögumaður ræðir samband sitt við föðurinn við sálfræðing. Núningur er til staðar á milli hins framhleypna sænska sálfræðings og sögumannsins sem sjálfur er lokaður, markaður af uppvexti sínum á hinum álensku eyjum – uppvexti sem ekki er alltaf fegraður. Lýsingarnar á atvikum úr bernsku hans virðast óblíðar en í þeim býr líka knöpp kímni, eins og þegar sögumaður viðurkennir fyrir sálfræðingnum að það hafi vissulega ekki verið „ákjósanlegt“ þegar faðirinn byrlaði honum eitt sinn lyf.

Í stuttu máli er þetta falleg lýsing, laus við tilfinningasemi, á feðgasambandi sem einkennist af gagnkvæmri virðingu og ást, þrátt fyrir ákveðna bresti í forsendum sambandsins. Faðirinn er að sumu leyti misheppnaður í augum samfélagsins og sín sjálfs; í augum sonarins lýsir snilld föðurins engu að síður í gegn þrátt fyrir alla hans galla. Hann er gáfaður, sjarmerandi og ljóðrænn lífskúnstner með gríðarstóran líkama og enn stærra hjarta, sem þrátt fyrir öll þyngdarlögmál býr yfir blygðunarlausri getu til að framkvæma hið fullkomna svanahopp.

 

Rithöfundurinn og gagnrýnandinn Sebastian Johans (f. 1978) er uppalinn á Álandseyjum og býr núorðið á víxl í Uppsölum og á Álandseyjum. Fyrsta bókmenntaverk hans, Broarna, kom út árið 2020, hlaut mikið lof og var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Skáldsagan Döden ock Kerstin kom út 2023 og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Auk höfundarferilsins starfar Johans sem listgagnrýnandi, meðal annars fyrir Dagens Nyheter, og hefur sent frá sér fjölda bóka um ýmsa listamenn. Svanhopp. Roman om död far var einnig tilnefnd til bókmenntaverðlauna finnlandssænska ríkisútvarpsins árið 2025.