Tomi Kontio og Elina Warsta
Koira nimeltään Kissa hyvästelee ystävän („Hundur að nafni Köttur kveður vin“, hefur ekki komið út á íslensku) er myndlýst, stutt skáldsaga fyrir börn sem ögrar fyrirframgefnum hugmyndum um það hvað nútímabarnabækur geta verið. Hún fjallar um hund, kött og manneskju, um lífið við höfnina í borg að nafni Helsinki og um vorlegan skóg þar sem blómin vagga í vindinum og burknarnir opna hnoðra sína eins og arnarvængi. Hún fjallar um sorg og dauða, um að kveðja þann sem maður elskar ofar öllu öðru.
Hundurinn heitir Köttur, kötturinn heitir Hundur og maðurinn heitir Mörður – og kallar sjálfan sig fyllibyttu. Þeir búa í yfirgefnum gámi, horfa á sjónvarp sem virkar ekki og skálda sjálfir þættina í því, allt frá íþróttalýsingum til sápuópera. Aðalpersónan og sögumaðurinn, hundurinn sem heitir Köttur, lýsir hinni ástríku tilveru sambýlinganna þriggja. Auk angurværðar og stigvaxandi sorgar býr frásögnin yfir kímni og samfélagsrýni sem er einkum miðlað með orðum hins mennska Marðar.
Tomi Kontio þorir að stefna lesendum sínum að einu erfiðasta viðfangsefni lífsins: dauðanum. Hann þorir að treysta hinu ljóðræna tungumáli og treysta því að í barnabók megi ekki aðeins skrifa um sorg og það að vera utanveltu, heldur líka um náungakærleik, og það með slíku orðavali að fullorðnir lesendur geta komið auga á tengsl við Fjallræðuna. Bókin útheimtir þó ekki neins konar trúarlega heimsmynd eða lestur. Heimspekingur og predikari frásagnarinnar er Mörður, deyjandi útigangsmaður og alkóhólisti sem er bæði margorður og orðheppinn og reynir að hjálpa vinum sínum, hundinum og kettinum, að mæta því sem í vændum er. Lesandinn er dreginn inn í myndhverfar hugsanir hans og fær að íhuga sorg og dauða á óvenju milliliðalausan hátt. Ekki síður miðlægt er hitt þema bókarinnar, ástin, sem fyllirafturinn segir að geri sorgina mögulega – og öfugt.
Samtöl Kattar, Hunds og Marðar vekja lesandann til umhugsunar og sé bókin lesin í annað sinn verða þær vangaveltur enn dýpri og sterkari, hjartnæmari og hlýjari. Þannig snertir bókin við lesandanum en er einnig fyndin og merkilega blátt áfram. Tungumálið er fallegt, markvisst og klingjandi – það er flæðandi tilfinningaríkt og orðmargt, en um leið skýrt og skorinort. Náttúrunni er lýst eins og hún er, með rotnum öspum og fuglum vorsins, en einnig sem hluta af upplifun persónanna: þegar söngur gráspörsins ómar í skóginum klæðir hann aðalpersónuna í sorgarfeld.
Þegar sagan er hálfnuð, eftir dauða Marðar, fer hún að snúast um hvernig Köttur og Hundur lifa af og frásögnin öðlast framtakssamari blæ. Nú finnum við einnig fyrir nærveru borgarinnar, sem heyrist bókstaflega í rödd aðalpersónunnar. Þegar Köttur er lokaður bak við lás og slá og ýlfrar á hjálp er melódían „löng og kvartandi eins og jarðlest sem beygir inn að viðhaldsstöð“. Þetta er síðasta bókin um félagana þrjá sem lesendur hafa fylgst með í fjölda vinsælla myndabóka. Hún getur þó einnig staðið sem sjálfstæð frásögn og lesturinn útheimtir ekki þekkingu á fyrri bókunum.
Listilegar myndir og umbrot Elinu Warsta eru snar þáttur í verkinu og áhrifamætti þess. Í gegnum svarthvítar heilsíðuteikningar hennar síast sorg og huggun, ljós og skuggar á næman og blíðlegan hátt. Með hjálp þéttra strika skapar Warsta augnablik sem eru örugg og erfið á víxl, dregur spennandi mörk og skapar rými fyrir trjálundi eða hafnsvæði að nóttu. Í myndunum leynist líka ýmislegt sem minnir á faðm í heimi bókarinnar. Auk þess að vera föðmuð af manneskju eða dýri býður myndheimur Warsta okkur að sitja í faðmi skógar, herbergis eða stjörnuhimins.
Sem lestrarupplifun er Koira nimeltään Kissa hyvästelee ystävän taugatrekkjandi og stórkostlega hjartnæmt verk sem býr jafnframt yfir miklum skilningi og huggun. Þetta er ekta, áhrifamikil og mikilvæg bók sem er ekki aðeins góð lesning fyrir börn og unglinga heldur einnig fullorðna á öllum aldri.
Tomi Kontio (f. 1966) er ljóðskáld og rithöfundur sem hefur tvívegis hlotið Finlandia-verðlaunin í flokki barna- og unglingabókmennta, árið 2000 fyrir bókina Keväällä isä sai siivet og 2025 fyrir Koira nimeltään Kissa hyvästelee ystävän. Fyrsta bókin í röðinni, myndabókin Koira nimeltään Kissa, var tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2016.
Elina Warsta (f. 1979) er á meðal þekktustu og virtustu myndhöfunda Finnlands. Hún hlaut barnamenningarverðlaun finnska ríkisins árið 2016 og hefur fengið fjölda verðlauna fyrir myndlýsingar sínar, meðal annars barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2016 fyrir myndabókina Koira nimeltään Kissa. Hún sá einnig um umbrot bókarinnar sem nú er tilnefnd.