Inngangur

Norrænt samstarf í austur og gegnum skrifstofurnar í Eystrasaltsríkjunum eru mikilvægur þáttur í alþjóðastarfi Norrænu ráðherranefndarinnar. Sameiginleg verkefni á ýmsum sviðum, svo sem í menningarmálum, orku- og umhverfismálum, stafvæðingu og heilbrigðismálum, rannsóknum og menntun, eru þróuð og útfærð í nánu samstarfi við baltnesku löndin. Seigla og viðbúnaður á öllum sviðum verður stöðugt mikilvægara á viðsjárverðum tímum í heiminum. Við vinnum að lýðræðislegri seiglu með því að styðja við lýðræðisþróun, tjáningarfrelsi, umræðum og virkri þátttöku ungs fólks.

Veittir eru styrkir til borgarasamfélagsins gegnum félagasamtök, meðal annars til áætlana eins og Prosperous Future og norrænnar fjölmiðlaáætlunar fyrir Belarus sem styrkir fjölmiðla sem starfa í útlegð. Þá eru leiðtogafundir ungs fólks frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum skipulagðir og þróaðir áfram af ungmennaráðum landanna sem eru að festa sig í sessi sem mikilvægir umræðuvettvangar fyrir ungt fólk.

Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í 35 ár

Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í 35 ár: Saman erum við sterkari

Í 35 ár hefur samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja byggst á trausti, gagnkvæmri virðingu og sameiginlegri trú á lýðræði, frið og stöðugleika. Þegar Norræna ráðherranefndin opnaði skrifstofur í Eystrasaltsríkjunum 1991 var hún meðal alþjóðlegra aðila sem fyrstir studdu endurheimt sjálfstæði landanna. Þannig varð til samstarf sem einkennist af samstöðu, samheldni og sameiginlegum markmiðum.

Allar götur siðan hefur samstarfið þróast og orðið eitt öflugasta og framsýnasta svæðissamstarf heims. Löndin vinna á fjölmörgum sviðum að menntun, uppbyggingu lýðræðis, heilbrigðismálum, orkumálum, nýsköpun og samfélagsöryggi.

Nú, þegar aukinn órói einkennir Evrópu og sótt er að lýðræðinu og þjóðarréttinum úr ýmsum áttum, er þetta samstarf mikilvægara en nokkru sinni. Traustið sem við höfum byggt upp í 35 ár og gildin sem liggja til grundvallar samstarfinu styrkja samfélög landanna og búa þau undir að takast á við sameiginlegar áskoranir.

Saman erum við sterkari

Myndskeið

Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í 35 ár

Fréttir

A man standing in front of a screen with the text NOBID Seminar 2026.
29.01.26
Norræna ráðherranefndin

Norðurlönd og Eystrasaltslönd vilja vera í fararbroddi er ESB krefst öruggra rafrænna samskipta um víða Evrópu

10.12.25
Norræna ráðherranefndin

10 tillögur ungmenna um græn umskipti og atvinnuþátttöku ungs fólks

Skrifstofur Norrænu ráðherranefndarinnar í Eystrasaltsríkjunum

Skrifstofurnar í Eystrasaltsríkjunum munu gegna lykilhlutverki í starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar á þessum slóðum 2025-2027. Skrifstofurnar eru fulltrúar Norrænu ráðherranefndarinnar í Eystrasaltsríkjunum og gegna mikilvægu hlutverki við að koma á fót samstarfi og mynda tengslanet.

Skrifstofurnar samræma og eiga náið samstarf við norrænu sendiráðin í löndunum svo og norrænar stofnanir og fagsvið ráðherranefndarinnar.

Prosperous Future – Grant Programme for Civil Society Cooperation in the Nordic-Baltic Region

Prosperous Future

Styrkjakerfi fyrir samstarf innan borgarasamfélagsins á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum.

Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja um stafvæðingu

Norrænt samstarf um stafvæðingu er samstarf ráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Markmið þess er að styrkja samkeppnishæfni svæðisins, stuðla að grænum umskiptum og tryggja inngildandi og örugga stafræna þróun. Yfirlit yfir forgangsmál, lykilskjöl, fréttir og verkefni.

Skýrslur:

25.11.25

School elections and other elections for young people in the Nordic countries

Publications number:
2025:571
28.10.25

Norden 2026: Forbundne i skiftende tider. Danmarks og Færøernes formandskab for Nordisk Ministerråd 2026

Publications number:
2025:719
25.06.25

Bridging the Digital Gap through Reverse Mentorship

Publications number:
2025:555
12.05.25

Smart communities in the Nordic-Baltic region: A literature review

Publications number: 2025:3
10.02.25

Alignment and overall strategy for the handling of in silico methods in human health assessment of plant protection products in the Northern Zone

Publications number: 2025:902
08.02.22

Monitoring Digital Inclusion in the Nordic-Baltic region

Publications number: 2022:007
08.04.21

Heat pump potential in the Baltic states

Publications number: 2021:02
26.11.19

Monitoring of microplastics in the marine environment

Publications number: 2019:053
15.05.19

In the spirit of collaboration

Publications number: 2019:423
09.04.19

New Nordic Peace

Publications number: 2019:524
28.03.19

Effects of Network Funding

Publications number: 2019:523
Thumbnail
04.12.18

Youth and News in a Digital Media Environment

Thumbnail
13.11.18

Technical report: Nordic Green to Scale for countries

Publications number: 2018:548

Tengiliðir:

Thomas Strømme 

Aðalráðgjafi, alþjóðasamstarf

thostr@norden.org 

+45 60 39 42 77 

 

Julia Wolman 

Verkefnisstjóri, alþjóðasamstarf

julwol@norden.org 

+45 27 10 94 48