Norræna ráðherranefndin samþykkir að fjármagna norrænt-baltneskt gervigreindarsetur

18.06.25 | Fréttir

Supercomputer LUMI, Kajaani Finland. One of the fastest super computers in the Nordics, where AI is developed in Nordic and international cooperation. 

Ljósmyndari
Mikael Kanerva, CSC

Ofurtölvan LUMI í Kajaani í Finnlandi. Ein hraðasta ofturtölva á Norðurlöndum þar sem norrænu löndin og Evrópusambandið vinna náið saman að þróun gervigreindar.

Norræna ráðherranefndin hefur samþykkt að verja 30 milljónum danskra króna á þriggja ára tímabili til að stofna og koma á fót norrænu-baltnesku gervigreindarsetri. Stofnanir frá öllum Norðurlöndunum taka þátt í stofnun setursins sem verður formlega opnað haustið 2025.

AI Sweden, AI Finland, Digital Dogme, IKT Norge og Almannarómur standa að baki umsókn um stofnun norræns-baltnesks gervigreindarseturs sem nú hefur hlotið fjárstyrk frá Norrænu ráðherranefndinni. Setrið mun hafa starfsfólk í öllum þátttökulöndunum og mun skrifstofa í Svíþjóð sjá um samræmingu starfseminnar. Markmiðið er að fá Eystrasaltslöndin einnig með í samstarfið.

Setrið mun hraða innleiðingu og nýsköpun á sviði gervigreindar á öllu svæðinu með því að starfa sem miðstöð fyrir stjórnvöld, vistkerfi, fyrirtæki og stofnanir þvert á atvinnugreinar. Setrið mun efla stefnumótandi forystu og sérþekkingu og bjóða upp á þá hæfni og úrræði sem aðilar innan landanna þurfa á að halda.

 

Gervigreindarsetrið er lykilþáttur í að ná markmiði okkar fyrir 2030 um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Samstarf þvert á landamæri og atvinnugreinar gefur Norðurlöndum einstakt tækifæri til að leiða þróun ábyrgra gervigreindarlausna, efla samkeppnishæfni okkar og styrkja áhrif okkar í evrópska gervigreindarumhverfinu.

Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar
Eftirfarandi ráðuneyti og ráðherrar standa að ákvörðuninni

Samstarfsráðherrar Norðurlanda

Anders Adlercreutz, Finnland

Annika Hambrudd, Álandseyjar

Åsmund Grøver Aukrust, Noregur

Bjarni Kárason Petersen, Færeyjar

Jessica Rosencrantz, Svíþjóð

Logi Einarsson, Ísland

Morten Dahlin, Danmörk

Vivian Motzfeldt, Grænland

 

Ráðherrar stafvæðingar

Anna-Kaisa Ikonen, Finnland

Aušrinė Armonaitė, Litháen

Caroline Stage, Danmörk

Daði Már Kristófersson, Ísland

Erik Slottner, Svíþjóð

Inga Bērziņa, Lettland

Ingrid Zetterman, Álandseyjar

Jens-Frederik Nielsen, Grænland, forsætisráðherra

Karianne Oldernes Tung, Noregur

Liisa-Ly Pakosta, Eistland

Ruth Vang, Færeyjar

 

Viðskiptaráðherrar

Cecilie Myrseth, Noregur

Ebba Busch, Svíþjóð

Jesper Josefsson, Álandseyjar

Morten Bødskov, Danmörk

Naaja H. Nathanielsen, Grænland

Sakari Puisto, Finnland

Sirið Stenberg, Færeyjar

Logi Einarsson, Ísland