10 tillögur ungmenna um græn umskipti og atvinnuþátttöku ungs fólks

10.12.25 | Fréttir
Ljósmyndari
norden.org
Mikilvægt er að hlýða á raddir ungmenna, ekki síst nú þegar sótt er að meginreglum lýðræðis. Ósk þeirra um fjögurra daga vinnuviku til að bæta andlega heilsu fólks eða grænar samgönguleiðir fyrir alla, eru mikilvægar áminningar um að leggja verður við hlustir þegar ungt fólk tekur hljóðnemann í hönd.


„Victor Hugo var 27 ára þegar hann skrifaði leikritið Hernani þar sem hann storkaði konungsvaldinu og sætti ritskoðun fyrir vikið. Sophie Scholl dreifði flugritum þar sem hvatt var til andspyrnu gegn valdi nasista þegar hún var 21 árs. Þau báðu ekki um leyfi. Þau biðu ekki eftir að aðstæður yrðu fullkomnar. Þau beittu rödd sinni til að knýja fram breytingar. Það er þetta sem lýðræðið í Evrópu þarfnast nú.“

Þetta sagði Alain Berset, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, þegar hann ávarpaði rúmlega 150 ungmenni á Nordic-Baltic Youth Summit 2025. Ráðstefnan er byggð á hugsuninni „frá okkur til okkar“, þar sem dagskráin er sett saman af ungu fólki fyrir ungt fólk. Finnar stóðu í þetta sinn að undirbúningi ráðstefnunnar sem fór fram í nágrenni Helsinki. 

Alain Berset, Secretary General Council of Europe

Secretary General of the Council of Europe, Alain Berset, addresses the summit

Ljósmyndari
norden.org

Alain Berset, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, ávarpar þingið

Ástæða þess að mikilvægt er að koma saman

Er ungt fólk ef til vill betur til þess fallið en þau sem eldri eru að móta nauðsynlegar breytingar til að samfélög okkar stefni í rétta átt, sem hægt er að flétta inn í stefnumótun?

Til að svo geti orðið þarf ungt fólk að fá tækifæri til að láta í sér heyra, vinna að verkefnum, móta stefnumótunartillögur og taka þátt í lýðræðisstarfi. Þegar upplýsingaóreiða, refsileysi og valdboðsstefna þrengja að lýðræðinu verður rödd ungs fólks stöðugt mikilvægari. 

The Nordic Baltic Youth Summit er vettvangur sem veitir ungu fólki tækifæri til áhrifa, þar sem fram fer lýðræðisleg umræða og ungu fólki frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum gefst kostur á að koma saman, skiptast á skoðunum og mynda tengsl en einnig þar sem ólík sjónarmið mætast. 


Tillögur þeirra eru áminning og leiðbeiningar sem stefnumótendur eiga að taka tillit til. Þegar hafa tillögur á sviðum vinnumarkaðar, stafvæðingar og loftslagsmála, verið teknar til skoðunar hjá Norrænu ráðherranefndinni.

Heilbrigður efi í bland við von og vilja til breytinga gerir þig að ábyrgum borgara – ekki blind bjartsýni eða innantóm slagorð.

- Gabija Strumylaité, þátttakandi frá Vilnius, Litáen

4 lykiltillögur sem áhersla er lögð á

Við viljum að ríkisstjórnir Norðurlanda og Eystrasaltsríkja taki upp fjögurra daga vinnuviku til að bæta andlega heilsu fólks
Til að takast á við geðheilbrigðisvanda á vinnumarkaði mælum við með að ríkisstjórnir Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna styðji innleiðingu fjögurra daga vinnuviku.

Við þurfum grænar samgöngur fyrir alla 
Til að tryggja almennan aðgang að umhverfisvænum samgöngum mælum við með að ríkisstjórnir Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna komi á fót og samræmi hagkvæmar grænar samgönguleiðir sem veita öllum íbúum aðgang að grænum ferðamátum í og úr vinnu, óháð búsetu.
 

Árleg ráðstefna þar sem ungir frumkvöðlar úr hópi frumbyggja koma saman
Til að hvetja ungt fólk úr hópi frumbyggja til að snúa aftur heim og byggja upp ný fyrirtæki mælum við með að Norræna ráðherranefndin komi á fót árlegri ráðstefnu þar sem ungir frumkvöðlar úr hópi frumbyggja víðs vegar að frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum geta hist, miðlað þekkingu og styrkt tækifæri sín til að stofna fyrirtæki.
 

Í öllum opinberum alþjóðlegum sendinefndum ætti að vera lýðræðislega valinn fulltrúi ungs fólks 
Við mælum með að ríkisstjórnir Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna setji reglur um að í hverri opinberri alþjóðlegri sendinefnd sé æskulýðsfulltrúi sem er lýðræðislega valinn af æskulýðssamtökum viðkomandi lands til að tryggja sjálfstæði og lögmæti.
 

From Instagram account @nbyouthsummit

Ljósmyndari
norden.org

Af Instagram-reikningnum @nbyouthsummit

 

Hver voru meginviðfangsefnin 2025: 
?Í tvo daga könnuðu þátttakendur tvær brýnar áskoranir sem tengjast innbyrðis: Græn umskipti og atvinnuþátttaka ungs fólks

 

Niðurstaðan: 
?️  Róttækar stefnumótunartillögur, hugmyndir að verkefnum og efld tengslanet ungs fólks á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu, sem styrkir raddir ungs fólks

 

Hvert er hlutverk Norrænu ráðherranefndarinnar? 
?Hún studdi ráðstefnuna gegnum NORDBUK. Á þessu ári var ráðstefnan haldin í nágrenni Helsinki í lok nóvember og var hún skipulögð af finnskum æskulýðssamtökum.