Ný norræn gervigreindarmiðstöð opnuð í dag – er ætlað að efla notkun gervigreindar á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum

22.10.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Sara Landqvist/norden.org
Í dag er New Nordics AI hleypt af stokkunum en það er gervigreindarmiðstöð sem ætlað er að styðja við notkun og þróun gervigreindar í norrænu löndunum og Eystrasaltsríkjunum. New Nordics AI mun vinna að nánara samstarfi milli ríkisstjórna, stofnana og fyrirtækja með það að markmiði að norrænu löndin auki notkun gervigreindar og styrki þannig samkeppnishæfni svæðisins.

New Nordics AI var kynnt í dag á viðburði á vegum Finnlands og Álandseyja sem fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Fimm norrænir ráðherrar tóku þátt í dagskránni, meðal annars samstarfsráðherra Norðurlanda í Finnlandi sem benti á að nota verði gervigreind með ábyrgum hætti þannig að maðurinn sé ávallt í fyrirrúmi og að það borgaði sig fyrir okkur að vinna saman.

Norrænt samstarf í gervigreindarmálum eykur samkeppnishæfni okkar í alþjóðlegu tilliti. Alþjóðleg samkeppni og óvissa í heimsmálunum undirstrika mikilvægi samræmdrar stefnu. Þannig styrkja sameiginlegir vettvangar norrænu landanna, svo sem New Nordics AI, sameiginlega stöðu okkar ásamt því að efla rödd Norðurlanda innan ESB og á alþjóðavettvangi.

Anders Adlercreutz, samstarfsráðherra Norðurlanda í Finnlandi.

Norræna ráðherranefndin, samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna, fjármagnar uppbyggingu miðstöðvarinnar með 30 milljónum danskra króna á þremur árum og lítur svo á að fénu sé vel varið í þetta átak.

Í ljósi þess hve hratt gervigreind breytir samfélögum okkar fylgir því augljós kostnaður að dragast aftur úr. Við á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum berum bæði ábyrgð og höfum einstakt tækifæri til að taka forystu í ábyrgri notkun gervigreindar. Ég er því bæði ánægð og stolt yfir að við séum að gera þetta núna, og að við gerum það saman.

Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar

Byggist á styrkleikum hvers lands

Með einstöku samstarfi fimm innlendra gervigreindarstofnana frá Danmörku, Finnlandi, Noregi, Íslandi og Svíþjóð á New Nordics AI að vera vettvangur sem eflir samstarf, veitir sérfræðiþekkingu og styður við stefnumótun um gervigreind á svæðinu

Norræna gervigreindarvistkerfið byggist á einstökum styrkleikum hvers lands, þar sem metnaðarfull verkefni eru þegar í gangi í öllum löndunum. Með því að skala upp það sem virkar og læra hvert af öðru þvert á landamæri getum við hraðað þróuninni og styrkt samkeppnishæfni svæðisins í heild.

Iida Lähdemäki, annar tveggja starfandi framkvæmdastjóra New Nordics AI

Norræna nýsköpunarmiðstöðin hvati

Fyrsta skrefið að norrænni-baltneskri gervigreindarmiðstöð var stigið með tilraunaverkefni sem var fjármagnað af Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni og byggðist á einni af tillögunum frá Nordic Ethical AI Expert Group sem kynntar voru 2024. Norræna nýsköpunarmiðstöðin er hvati að sjálfbærum vexti og nýsköpun á Norðurlöndum og tengir saman hagaðila og atvinnulíf til að þróa lausnir sem styrkja samkeppnishæfni.

New Nordics AI Center markar tímamót fyrir svæðið, skref frá hugmynd til framkvæmdar. Með því er brugðist við ákalli norrænna sérfræðinga í gervigreind um sameiginlega umgjörð sem styrkir innlendar forgangsraðanir og svæðisbundið samstarf. Saman getum við gert ábyrga notkun gervigreindar að okkar helsta styrkleika og skapað okkur alþjóðlegt samkeppnisforskot.

Sindre Bornstein, framkvæmdastjóri Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar

Gervigreindarfyrirtæki sem eiga aðild að New Nordics AI: 

  • AI Sweden
  • AI Finland
  • Digital Dogme (Danmörk)
  • TEK Norge
  • Almannarómur

Einnig er verið að vinna að aðild fulltrúa frá Eystrasaltsríkjunum. Vefsíða New Nordics AI: https://www.newnordics.ai/