Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna um rafræn skilríki (NOBID-verkefnið)
Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna um rafræn skilríki, NOBID-verkefnið, er samstarfsvettvangur fyrir nýsköpun þegar kemur að því að gera notendum kleift að nota rafræna þjónustu þvert á landamæri. Aðilar að verkefninu eru Danmörk, Eistland, Finnland, Ísland, Lettland, Litháen, Noregur og Svíþjóð. Verkefnið er hluti af stefnuáætluninni CrossBorder Digital Services sem Norræna ráðherranefndin fjármagnar. Næstu árin verður NOBID áfram helsti samstarfsvettvangur Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í málefnum varðandi hina endurskoðuðu eIDAS-reglugerð og afleiðingar hennar, svo sem innleiðingu ESB-veskis fyrir rafræn skilríki.
Upplýsingar
Dagsetning
31.01.2020 - 31.12.2027
Tengiliður