Vinnuhópur um regluverk tengt stafvæðingu – Nobareg

01.09.23 | Verkefni
Møte
Ljósmyndari
Norden.org
Vinnuhópur um regluverk tengt stafvæðingu – Nobareg – var stofnaður 2022. Verkefni hans er að fjalla um málefni þar sem stafvæðing og regluverk skarast, svo sem lög um gagnastjórnun, gögn og gervigreind.

Upplýsingar

Dagsetning
01.04.2022 - 01.11.2026

Nobareg leggur sitt af mörkum til stafrænna aðgerða í löndunum með miðlun reynslu og sameiginlegum aðferðum við innleiðingu löggjafar ESB þar sem það á við. Hópurinn leitast við að finna og greiða fyrir upplýsingum um gott verklag við innleiðingu og mótun löggjafar um stafvæðingu og tekur í þeirri vinnu mið af sameiginlegum gildum Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna, t.d. þegar kemur að notkun gervigreindar og miðlun og endurnýtingu gagna.

Aðalmarkmiðið í framtíðinni verður að fínpússa samstillta nálgun við innleiðingu gagnareglugerðar ESB og stuðla að öflugu regluverki ríkjanna í tengslum við evrópskan gagnamarkað.

Tengiliður