Stafræn þjónusta þvert á landamæri (CBDS)

31.03.22 | Verkefni
Øresundsbroen
Ljósmyndari
Ritzau/Scanpix
VERKEFNI LOKIÐ: Verkefnið Cross Border Digital Service Programme (CBDS) er stefnumarkandi aðgerð sem ætlað er að flýta fyrir stafvæðingu á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu. Markmiðið er að auka hreyfanleika og samþættingu á svæðinu með hnökralausu aðgengi að stafrænni þjónustu þvert á landamæri. CBDS fylgir eftir ráðherrayfirlýsingunni „Digital North 2.0“ og framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2030 og styður við þá framtíðarsýn að Norðurlönd og Eystrasaltssvæðið verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Í gegnum verkefnið hefur verið unnið að því að auka gildi fyrir borgara, fyrirtæki og stjórnvöld í gegnum stjórnsýsluna og stuðning við viðeigandi verkefni. Verkefninu stýrir nefnd sem skipuð er fulltrúa allra ríkjanna. Sjá NOBID og OOTS 2.0 varðandi nánari upplýsingar um verkefni tengd CBDS.

Upplýsingar

Dagsetning
01.01.2020 - 31.12.2024