Single Digital Gateway – tilraunaverkefni

01.04.22 | Verkefni
Serverrom
Ljósmyndari
Getty images
VERKEFNI LOKIÐ: Í verkefninu „Once Only Proof of Concept Pilot“ er tekist á við sameiginlegar áhyggjur Norðurlanda og Eystarsaltsríkja um högun Once Only-fyrirkomulagsins í Single Digital Gateway-reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Upplýsingar

Dagsetning
01.01.2021 - 31.12.2023

Markmið verkefnisins er að finna sameiginlegar lausnir sem einfaldara og hagkvæmara er að innleiða fyrir Norðurlönd og Eystrasaltsríki. Aðeins er hægt að koma upp almennu líkani fyrir upplýsingamiðlun milli landa ef tekið er tillit til Once Only-fyrirkomulagsins sem vísað er til í Single Digital Gateway-reglugðinni í þessari vinnu. Til að tryggja að ekki skapist þörf á frekari fjárfestingum þarf að hefja mat og prófun á Once Only-fyrirkomulaginu og útbúa ráðleggingar og bestu venjur um upplýsingamiðlun milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.

Verkefnið er leitt af hinni finnsku KEHA-miðstöð (þróunar- og stjórnsýslumiðstöð ELY-miðstöðva og TE-skrifstofa).

Verkefnið er hluti af stefnuáætluninni Cross Border Digital Services.