Stafræn inngilding í verki
Upplýsingar
Samfélögin á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu eru á meðal þeirra fremstu í Evrópu þegar kemur að stafvæðingu og eru jafnan ofarlega í mælingum Evrópusambandsins á vísitölu stafræns hagkerfis og samfélags (European Commission’s Digital Economy and Society Index (DESI)). Stafrænt læsi, stafræn hæfni og færni eru allt nauðsynlegir þættir til að geta tekið þátt í hinu stafræna hagkerfi og samfélagi. Samhliða aukinni stafvæðingu er hætta á jaðarsetningu hópa sem skortir ákveðna hæfni, svo sem eldra fólks, fatlað fólk, fólk með litla eða enga menntun, ungt fólk á aldrinum 15–25 ára sem á í erfiðleikum með samskipti við hið opinbera, innflytjendur sem skortir tungumálakunnáttu og íbúar á strjálbýlum svæðum. Verkefnið miðar að því að taka saman stöðu mála varðandi stafræna inngildingu á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu og skoða áhrifin á ólóka þjóðfélagshópa.