Grunnskólar á Álandseyjum
Álandseyjar hafa löggjafarvald á sviði menntunar og kennslu og öll börn eiga rétt á skólagöngu óháð því hvar á eyjunum þau búa. Sveitarfélögin bera ábyrgð á grunnskólanámi, þ.e. 1. til 9. bekk. Grunnskólinn á Álandseyjum er gjaldfrjáls og býður auk kennslu upp á ókeypis námsefni, umönnun, skólamáltíðir og skólaakstur.
Börn bera skólaskyldu þegar þau eru orðin sjö ára. Skólaskyldan felur í sér skyldu til að læra þá þekkingu og færni sem kemur fram í námsskrá grunnskólanna. Forráðamenn barna bera ábyrgð á að tryggja að skólaskylda sé uppfyllt, hvort sem það er í skóla á vegum sveitarfélags, einkaskóla eða með heimakennslu. Skólaskyldu lýkur þegar barnið hefur lokið námsskrá grunnskólanna og fengið grunnskólapróf eða þegar tíu ár eru liðin frá því að skólaskylda hófst.
Nánari upplýsingar um grunnskóla á Álandseyjum er að finna á vefsíðum landsstjórnar Álandseyja og sambands sveitarfélaga á Álandseyjum.
Réttur til skólagöngu
Réttur til skólagöngu hefst þegar barnið fær skólaskyldu, þ.e. þegar það verður sjö ára. Öll börn með skólaskyldu eiga kost á að uppfylla skólaskyldu sína í grunnskóla í heimasveitarfélagi sínu. Sveitarfélög eiga einnig að bjóða grunnskólakennslu fyrir börn sem ekki hafa lögheimili á Álandseyjum ef þau búa þar vegna vinnu, náms eða svipaðra ástæðna forráðamanna. Við sérstakar aðstæður ber sveitarfélögum einnig að veita öðrum börnum sem í þeim dvelja grunnskólakennslu.
Lesa má nánar um rétt til grunnskólagöngu í landslögum Álandseyja um dagvistun barna og grunnskóla á vefsvæði landsstjórnar Álandseyja.
Innritun í grunnskóla
Sveitarfélögin senda út tilkynningu um skólaskyldu í byrjun þess árs þegar börn verða sjö ára. Börn þurfa að hafa lögheimili í sveitarfélagi á Álandseyjum og forráðamenn innrita börn í grunnskóla á vefsvæði viðkomandi sveitarfélag eða með eyðublaði á pappír. Hægt er að innrita nýja nemendur hvenær sem er á árinu. Upplýsingar um hvernig börn eru skráð í grunnskóla er að finna á vefsvæði viðkomandi sveitarfélags.
Heimakennsla
Börn sem búa á Álandseyjum geta uppfyllt skólaskyldu með heimakennslu. Þá bera forráðamenn ábyrgð á því að kennslan fylgi námsskrá og að barnið öðlist þá þekkingu og kunnáttu sem krafist er. Forráðamenn skulu á ári hverju tilkynna skriflega um heimakennslu til heimasveitarfélags síns og láta fylgja með áætlun um hvernig kennslunni verður hagað. Sveitarfélagið sem barnið býr í ber ábyrgð á að fylgjast með framförum barnsins og tryggja að barnið uppfylli kröfur um þekkingu. Eftirlit með heimakennslu í öllum sveitarfélögum á Álandseyjum er í höndum eftirlitsstofnunar heimakennslu í Maríuhöfn.
Börn sem fá heimakennslu eru ekki innrituð sem nemendur í nokkrum skóla en eiga rétt á heilbrigðisþjónustu fyrir nemendur, svo sem skólaheilsugæslu, sálfræðingi og námsráðgjafa. Börn með annað móðurmál en sænsku geta tekið þátt í undirbúningsnámi sem grunnskólinn í heimasveitarfélaginu skipuleggur. Sveitarfélagið getur einnig boðið nemanda sem er í heimanámi aðgang að sama námsefni og er notað á samsvarandi bekkjarstigi.
Nánari upplýsingar um heimakennslu er að vinna á vefsvæði landsstjórnar Álandseyja.
Frístundaheimili
Frístundastarf fyrir grunnskólabörn er hluti af dagvistun barna. Frístundaheimilum er ætlað að stytta þann tíma sem börn eru ein án nærveru einhvers fullorðins fyrir og eftir skóladaginn. Frístundaheimilunum er ætlað að bjóða upp á gæslu og umönnun fyrir fyrst og fremst yngri grunnskólabörn á 1. eða 2. námsári ef foreldrar þeirra eru í vinnu, atvinnuleit eða námi. Barn sem hefur þörf á sérstökum stuðningi á einnig rétt á frístundastarfi. Frístundaheimilin eru rekin af sveitarfélögunum, sem er heimilt að innheimta mánaðargjald. Skráning á frístundaheimili fer fram í því sveitarfélagi sem búið er í.
Nánari upplýsingar um starfsemi frístundaheimila er að finna á vefsvæðinu läroplan.ax eða á síðu Info Norden um dagvistun barna á Álandseyjum.
Grunnskólamenntun fyrir fullorðna
Grunnskólamenntun fyrir fullorðna er ætlað einstaklingum með lögheimili á Álandseyjum sem eru ekki lengur á skólaskyldualdri (17 ára og eldri) og ekki hafa lokið grunnskólaprófi. Námið skiptist í þrjú stig og er hægt að ljúka því í heild sinni eða að hluta til byggt á fyrri þekkingu.
Sveitarfélögin bera ábyrgð á menntuninni, annaðhvort sjálf, í samstarfi við önnur sveitarfélög eða í gegnum Lýðháskólann á Álandseyjum, sem hefur leyfi til að reka Grundvux. Sótt er um grunnskólanám fyrir fullorðna í heimasveitarfélaginu, hjá námsráðgjafa í grunnskóla eða leiðbeinanda hjá miðstöð vinnumarkaðar og námsaðstoðar á Álandseyjum (AMS). Sjá nánar á vefsíðu Lýðháskólans á Álandseyjum um Grundvux.
Nánari upplýsingar
Á vefsíðum Info Norden er að finna upplýsingar um grunnskóla annars staðar á Norðurlöndum og þær stofnanir sem leita skal til vegna spurninga.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.