Helgidagar á Álandseyjum
Helgidagar eða rauðir dagar eru sunnudagar og aðrir lögbundnir frídagar í tilefni trúarhátíðar eða annarrar hátíðar. Laugardagar og kvöldið fyrir frídag geta einnig verið frídagar, til dæmis miðsumarkvöld og aðfangadagskvöld.
Helgidagar eru yfirleitt frídagar fyrir launafólk en engu að síður öllum verslunum og fyrirtækjum heimilt að hafa opið á helgidögum. Gott getur verið að athuga ráðningarsamning og kjarasamning til að komast að því hvað á við fyrir þig.
Helgidagar á Álandseyjum
- 1. janúar: Nýársdagur
- 6. janúar: Þrettándi dagur jóla
- Mars–apríl: Föstudagurinn langi, páskadagur og annar í páskum Páskadagur getur fyrst verið 22. mars og síðast 25. apríl.
- Apríl–júní: Uppstigningardagur 40 dögum eftir páskadag. Alltaf á fimmtudegi, í fyrsta lagi 30. apríl og í síðasta lagi 3. júní.
- 1. maí: Fyrsti maí
- Maí–júní: Hvítasunnudagur. Hvítasunnudagur er tíu dögum eftir uppstigningardag, í fyrsta lagi 10. maí og í síðasta lagi 13. júní
- Júní: Miðsumardagur (Jónsmessa). Haldinn hátíðlegur laugardaginn eftir 19. júní.
- Nóvember: Allraheilagramessa
- 6. desember: Sjálfstæðisdagur Finnlands
- 25. desember: Jóladagur
- 26. desember: Annar dagur jóla
Fánadagar á Álandseyjum.
Álandseyjar hafa sinn eigin fána, sem er mikilvægt tákn sjálfstjórnar þeirra. Nota má fána Álandseyja allt árið um kring í tilefni almennra og einstakra hátíðis- eða merkisdaga. Þrír opinberir fánadagar eru á Álandseyjum:
- 30. mars: Hátíðisdagur afvopnunar og hlutleysis Álandseyja
- Síðasti sunnudagurinn í apríl: Fánadagur Álandseyja
- 9. júní: Sjálfstjórnardagur Álandseyja
Nánari upplýsingar um uppruna fánans, fánadaga og fánareglur er að finna á vefsíðu landsstjórnar Álandseyja.
Nánari upplýsingar
Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um helgidaga í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.