Sjúkralífeyrir á Álandseyjum

Á þessari síðu er vísað á upplýsingar um sjúkralífeyri, sem einnig er nefndur örorkulífeyrir, sem og lífeyriskerfið fyrir íbúa Álandseyja.

Á Álandseyjum gildir finnska lífeyriskerfið, sem samanstendur af starfstengdum lífeyri og grunnlífeyri. Starfstengdur lífeyrir og almennur lífeyrir eru meðal annars greiddir út í formi sjúkralífeyris. Sjúkralífeyrir (sjukpension), sem einnig er nefndur örorkulífeyrir (invalidpension), getur verið veittur ef starfsgeta er skert vegna sjúkdóms eða slyss í a.m.k. eitt ár. Fyrsta markmið er að endurheimta starfsgetu með endurhæfingu. Til að sækja um um sjúkralífeyrir þarf yfirleitt að leggja fram læknisvottorð og önnur gögn sem sýna fram á skerta starfsgetu. Ef starfsgeta skerðist í skemmri tíma geta sjúkradagpeningar verið greiddir frá FPA.

Nánari upplýsingar sjúkralífeyri, örorkulífeyri og finnska lífeyriskerfið fást á síðum Info Norden.

Nánari upplýsingar

Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um sjúkralífeyri og örorkulífeyri í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.

Hafa samband við yfirvöld
Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.