Lífeyriskerfið í Finnlandi

Suomen eläkejärjestelmä
Photographer
Centre for Ageing Better on Unsplash
Hér er sagt frá finnska lífeyriskerfinu og því hvernig fólk vinnur sér inn lífeyrisréttindi. Þær reglur sem hér er lýst eiga einnig við á Álandseyjum.

Finnska lífeyriskerfið skiptist í starfstengdan lífeyri, sem aflað er með því að vinna í Finnlandi, og lífeyri úr almannatryggingasjóði, sem tengist búsetu í Finnlandi.

Bæði starfstengdur lífeyrir og lífeyrir úr almannatryggingasjóði getur verið greiddur í formi ellilífeyris, örorkulífeyris, endurhæfingarstyrks og fjölskyldulífeyris. Frá og með árinu 2017 hefur einnig verið hægt að fá starfstengdan lífeyri greiddan að hluta sem ellilífeyri og starfsferilslífeyri.

Viljir þú vita meira um ellilífeyri þinn skaltu skoða síðuna Ellilífeyrir í Finnlandi.

Starfstengdur lífeyrir

Vinnuveitanda er skylt að tryggja starfsfólk sitt og sjálfstætt starfandi einstaklingum er skylt að tryggja sig hjá lífeyrisstofnun. Slíkar stofnanir eru lífeyristryggingafélög og lífeyrissjóðir. Fyrir sumar starfsgreinar eru sérstakir lífeyrissjóðir. Nánari upplýsingar eru á síðunni Työeläke.fi.

Bæði vinnuveitandi og launþegi greiða í starfstengdan lífeyrissjóð. Vinnuveitandi dregur lífeyrisgreiðslur launþega frá launum hans og leggur inn í lífeyrissjóð. Sjálfstætt starfandi einstaklingar sjá sjálfir um að greiða í lífeyrissjóð. Mismunandi lífeyrislög gilda um tryggingar fyrir mismunandi hópa. Lífeyrisþegi fær allan sinn starfstengda lífeyri greiddan frá sömu lífeyrisstofnun, þó að hann hafi starfað í fleiri en einni grein og verið tryggður hjá fleiri en einni stofnun á starfsævinni. Nánari upplýsingar um starfstengdan lífeyri og lög sem gilda um hann eru hér fyrir neðan.

Öflun starfstengdra lífeyrisréttinda

Finnskir launþegar byrja að afla sér lífeyrisréttinda við 17 ára aldur og sjálfstætt starfandi einstaklingar við 18 ára aldur.

Í ársbyrjun 2017 voru gerðar umbætur á finnska lífeyriskerfinu sem fela í sér að launþegar og sjálfstætt starfandi safni lífeyrisréttindum sem nemur 1,5 prósenti af árstekjum. Árin 2017–2025 eru hugsuð sem aðlögunartími og á því tímabili mun fólk á aldrinum 53–62 ára safna sér réttindum árlega sem nemur 1,7 prósenti af árstekjum.

Þegar einstaklingur fer á lífeyri eru áunnin réttindi leiðrétt með lífslíknastuðli, sem aðlagar greiðslurnar að auknum lífslíkum.

​​​​​​​Lífeyrir úr almannatryggingasjóði

Lífeyrir úr almannatryggingasjóði er tengdur búsetu. Réttur til slíks lífeyris og upphæð hans er því háð því hve lengi lífeyrisþeginn hefur verið innan finnska almannatryggingakerfisins – með öðrum hve lengi hann hefur búið í Finnlandi – svo og öðrum lífeyristekjum hans. Umsjón með lífeyrisgreiðslum úr almannatryggingasjóði hefur finnska almannatryggingastofnunin (Kansaneläkelaitos eða Kela).

Tegundir lífeyris

Ellilífeyrir og ellilífeyrir að hluta

Ellilífeyrir í Finnlandi er að megninu til starfstengdur lífeyrir sem fók hefur aflað á starfsferli sínum. Sé starfstengdur lífeyrir óverulegur eða ekki til staðar er hægt að fá greiddan lífeyri úr almannatryggingasjóði og hugsanlega lágmarkslífeyri, en báðar þessar tegundir lífeyris greiðast sem fyrr segir úr búsetutengdum sjóðum.

Ellilífeyrir að hluta þýðir að lífeyrisþega er þá frjálst að vinna samhliða töku lífeyris. Starfshlutfalli eru engin takmörk sett í slíkum tilvikum, en þó er ekki skylt að vinna samhliða lífeyristöku.

Nánari upplýsingar um ellilífeyri eru á síðunni Ellilífeyrir í Finnlandi.

Örorkulífeyrir


Örorkulífeyrir er veittur vegna varanlegrar skerðingar á starfsgetu. Áður en örorkulífeyrir er veittur er hægt að fá endurhæfingarstyrk, sem jafngildir tímabundnum örorkulífeyri. Ávallt er látið reyna á endurhæfingu áður en einstaklingur er settur á örorku. Nánari upplýsingar eru á síðunum Endurhæfing í Finnlandi og Örorkulífeyrir í Finnlandi.

Starfsferilslífeyrir

Starfsferilslífeyri er unnt að veita einstaklingi

  • sem er orðinn 63ja ára,
  • sem hefur stundað mikla og krefjandi vinnu í að minnsta kosti 38 ár og
  • sem hefur lítillega skerta starfsgetu.

Nánari upplýsingar eru á síðunni Työeläke.fi.

Fjölskyldulífeyrir

Fjölskyldulífeyrir er greiddur eftirlifandi mökum látinna einstaklinga og börnum þeirra yngri en 20 ára. Kela greiðir barnalífeyri einnig ungmennum yngri en 21 árs sem eru í fullu námi. Ef þú hefur misst maka þinn og býrð annars staðar en í Finnlandi getur þú fengið lífeyri eftirlifandi maka frá Kela ef þú heyrir undir finnska almannatryggingakerfið og uppfyllir skilyrði að öðru leyti. Nánari upplýsingar um fjölskyldulífeyri eru á síðunni Dánarbætur í Finnlandi.

Að flytja erlendis sem lífeyrisþegi

Lífeyrisþegi sem flytur frá Finnlandi til annars norræns lands á áfram rétt á að fá sömu upphæð starfstengds lífeyris og lífeyris úr almannatryggingasjóði og hann fékk fyrir flutninginn. Húsnæðisstyrkur lífeyrisþega er þó ekki greiddur til annarra landa en Finnlands. Viðbótarbarnabætur eru greiddar sem fjölskyldustyrkur í samræmi við ESB-reglugerð  til einstaklinga sem fá starfstengdar lífeyrisgreiðslur eða lífeyrisgreiðslur úr almannatryggingasjóði frá Finnlandi.

Lágmarkslífeyrir er aðeins greiddur einstaklingum búsettum í Finnlandi. Lágmarkslífeyrisþegi getur þó dvalið tímabundið í öðru landi án þess að fyrirgera lífeyrisrétti sínum.

Nánari upplýsingar um að fá finnskan lífeyri til annarra landa eru á vefsvæði Kela.

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.

Info Norden er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Við gefum upplýsingar til fólks sem vill flytja, vinna, stunda nám, leita styrkjum eða hefja rekstur í öðru norrænu landi.
Leitaðu að skrifstofu Info Norden hérna