Tungumálanámskeið á Álandseyjum
Á Álandseyjum er eitt opinbert tungumál, sænska, en ekki bæði finnska og sænska eins og í Finnlandi. Medborgarinstitutet (Medis) býður upp á sænskunámskeið fyrir innflytjendur og önnur tungumálanámskeið, þar á meðal á norrænu tungumálunum. Inntak tungumálanámskeiðanna er mismunandi og stigin eru í samræmi við viðmið Evrópuráðsins (A1-C1). Lesa má allar upplýsingar um námsframboð Medis á vefsíðu þess.
Sænska fyrir innflytjendur
Sænska fyrir innflytjendur (SFI-námskeið) eru hraðnámskeið þar sem kennt er allan daginn sem fjármögnuð eru af landsstjórn Álandseyja. Til að fá inngöngu í námskeið þarf einstaklingur að vera búsettur á Álandseyjum og vera skráður sem í atvinnuleit hjá Miðstöð vinnumarkaðar og námsaðstoðar á Álandseyjum (AMS). Medis býður einnig upp á almenn námskeið í sænsku fyrir innflytjendur sem kjósa ekki eða eiga ekki kost á að sækja SFI-námskeið. Sjá nánar á vefsíðu AMS eða Medis um sænsku fyrir innflytjendur.
Almenn tungumálapróf
Á hverri önn býður Medis upp á námskeið sem veitir sérstakan undirbúning fyrir almennu tungumálaprófin. Almennu tungumálaprófin (YKI-prófin) eru tungumálapróf á landsvísu fyrir fullorðna sem haldin eru af fræðsluyfirvöldum (Utbildningsstyrelsen) í Finnlandi. Prófið metur tungumálafærni í hagnýtum aðstæðum. Meðal annars má nota YKI-prófskírteini til að:
- sækja um vinnu eða nám
- sækja um finnskan ríkisborgararétt
- sýna vinnuveitanda fram á tungumálafærni
Nánari upplýsingar um námsframboð, gjöld og umsóknarferlið fyrir almennu tungumálaprófin er að finna á vef Medis.
Nánari upplýsingar
Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um tungumálanámskeið í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.