7 aðgerðasvið til að efla samstarf um atvinnulíf

Ljósmyndari
Supradoc, Unsplash
Hér er að finna upplýsingar um þau málefnasvið sem Norræna ráðherranefndin um atvinnulíf vinnur að til að styðja við þróun atvinnuveganna á Norðurlöndum.

1. Hraða verður grænum og stafrænum umskiptum

Aðgerðunum er ætlað að hraða grænum og starfrænum umskiptum með þróun nýrra og nýskapandi lausna. Áhersla er lögð á aðgerðir sem byggja á lífsferli, tilraunaverkefni og hraðar markaðskynningar. Unnið er að stöðlun, hringrásarhagkerfi og uppbyggingu sterkra virðiskeðja, auk samstarfs um sjálfbæra framleiðslu mikilvægra hráefna.

2. Stafrænar lausnir, gagnanotkun og gagnaskipti

Markmiðið er að styrkja tækifæri norrænna fyrirtækja til að nýta stafrænar og grænar lausnir. Samstarfið felst í gagnadrifinni nýsköpun, siðferðilegri notkun gervigreindar, þróun stafrænna vistkerfa og eflingu hringrásarlíkana í viðskiptum. Áhersla er lögð á að Norðurlönd verði leiðandi á sviði stafrænna og grænna umskipta.

3. Aukið samstarf um alþjóðavæðingu og aðgang að fjármagni.

Aðgerðinni er ætlað að auka útflutning og umfang grænna norrænna lausna. Unnið er með samstarf við mikilvæga aðila, klasa og samstarfsnet, aðgang að fjármagni og virkjun fjárfestinga einkaaðila. Markmiðið er að Norðurlönd verði aðlaðandi frummarkaður fyrir nýja tækni og að skapa sóknarfæri á alþjóðamörkuðum.

4. Samstarf um bygginga- og húsnæðismál

Áhersla er lögð á þróun á samkeppnishæfum og sjálfbærum bygginga- og húsnæðismarkaði Í aðgerðinni felst stafvæðing, umskipti í átt til hringrásarhagkerfis og samræming staðla. Unnið er að því að uppræta stjórnsýsluhindranir, efla hringrásarlausnir og styrkja útflutningsmöguleika á norrænum vörum.

5. Aukið samstarf um iðnstefnu ESB og einföldun reglna

Markmiðið er að styrkja norrænt samstarf um iðnstefnu Evrópusambandsins og tryggja samræmda innleiðingu reglna. Aðgerðinni er ætlað að draga úr álagi á fyrirtæki, stuðla að einföldun reglna og skapa samþættan heimamarkað Norðurlanda.
 

6. Skýrslugerð um sjálfbærni

Aðgerðinni er ætlað að gera Norðurlönd leiðandi á sviði skýrslugerðar um sjálfbærni með stafvæðingu, stöðlun og sjálfvirknivæðingu. Markmiðið er að draga úr álagi á fyrirtæki, auka samkeppnishæfni og styðja við útflutning grænna lausna.
 

7. Norrænt samstarf um ferðaþjónustu

Markmiðið er að styrkja Norðurlönd sem sjálfbært og samkeppnishæft ferðamannasvæði. Vinnan fer fram í norrænum starfshóp um ferðamál (Nordic Tourism Working Group) og byggir á þremur áherslusviðum:

 

  1. Samkeppnishæf Norðurlönd: Viðnámsþol, ákvarðanir byggðar á þekkingu og færniþróun.
  2. Nýskapandi Norðurlönd: Ný tækni í þágu sjálfbærni og félagslegrar inngildingar.
  3. Aðlaðandi Norðurlönd: Varðveita norræna sjálfsmynd og gildi, efla umhverfislega og félagslega sjálfbærni.