Áætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum

Ljósmyndari
Unsplash
Norðurlönd og aðrir hlutar Evrópu upplifa í aukum mæli veðuröfgar; allt frá hitabylgjum og skógareldum til mikillar úrkomu og flóða. Vegna loftlagsbreytinga má búast við að slíkar aðstæður verði æ algengari og öfgafyllri.

Til að efla viðbúnað samfélagsins og stuðla að langtímaviðnámi þvert á geira og landamæri þarf samræmd viðbrögð. Samþætta verður aðlögun við tengd stefnu- og skipulagsmál, svo sem mótvægisaðgerðir, almannavarnir og heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun, til þess að forðast árekstra milli markmiða og hámarka samlegðaráhrif.

- Áætlunin um aðlögun að loftslagsbreytingum markar stefnubreytingu með því að viðurkenna aðlögun sem grunnstoð sjálfbærrar þróunar. Áætlunin gegnir hlutverki vettvangs fyrir þekkingarmiðlun og auðveldar með því viðbrögð við sameiginlegum áskorunum í tengslum við loftlagsbreytingar og tap líffræðilegrar fjölbreytni í norrænu samhengi. Með samstarfi og sameiginlegum aðgerðum geta Norðurlöndin bætt getu sína til að mæta sameiginlegum áskorunum á borð við veðuröfgar, tap á líffræðilegrar fjölbreytni og röskun vistkerfa.

Áherslusvið

- Að auka áherslu á loftlagsáhættu þvert á landamæri til að öðlast betri skilning á hættum og efla samstarf um áfallaviðbúnað og aðlögun að loftlagsbreytingum.

- Að bæta tækifæri til að fjármagna aðlögun að loftlagsbreytingum með því að bæta aðgengi að upplýsingum og skapa hvata fyrir fleiri aðila í samfélaginu.

- Að bæta skilning á því hvernig loftlagsbreytingar hafa áhrif á norræn vistkerfi með áherslu á valdhafa og umsjónaraðila verndaðra svæða.

- Að stuðla að bættri söfnun og aukinni miðlun gagna til að meta áhrif loftlagsbreytinga og aðlögunarráðstafana.

- Að efla norrænt samstarfs um aðlögun að loftlagsbreytingum með því að skapa vettvang fyrir umræður, þekkingarmiðlun og tengslamyndun.

Áætlunin veitir stuðning fyrir valdhafa á öllum stigum – landsbundið, svæðisbundið og staðbundið – sem og einkaaðila og hagsmunaaðila í samfélaginu. Með því að takast á við sameiginlegar áskoranir og einblína á sameiginleg tækifæri leggur áætlunin sitt af mörkum til framtíðarsýnar um viðnámsþrótt Norðurlanda í loftlagsmálum fyrir árið 2030.