Norrænar fjármálastofnanir vísa veginn þegar kemur að loftslagsaðgerðum og sjálfbærri þróun á COP29
Norræni fjárfestingarbankinn (NIB), Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) og Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) gegna lykilhlutverki í þeirri viðleitni Norðurlanda að stuðla að sjálfbærri þróun, loftslagsaðlögun og umhverfisvernd, jafnt heima fyrir sem á heimsvísu. Hver stofnun hefur sínar sínar sérstöku áherslur en saman vega þær hver aðra upp með aðgerðum sínum til þess að koma í veg fyrir loftslagsbreytingar.
Fjármögnun verður þemað í norræna skálanum 14. nóvember
Fimmtudaginn 14. nóvember taka stofnanirnar þátt í og standa fyrir umræðum í norræna skálanum. Áhersla verður um loftslagssnjalla fjármögnun og sjálfbærar lausnir. Umfjöllunarefnið verður meðal annars bankar og loftslagsstefna, norræn loftslagsnýsköpun, stækkun raforkudreifikerfisins og fjármögnun lausna í tengslum við hreina matargerð í þróunarlöndum.
Saman bera þessar þrjár stofnanir vott um kraftinn í norrænu samstarfi um sjálfbæra þróun. Þær reyna að takast á við hnattræn úrlausnarefni með þeim hætti að fjárhagslegur vöxtur og umhverfis- og loftslagssjónarmið gangi hönd í hönd. Ríki heims geta dregið dýrmætan lærdóm af farsælli sögu stofnananna, allt frá verkefnum tengdum sjálfbærum landbúnaði í Afríku til aðgerða til að draga úr losun í Austur-Evrópu. Með starfsemi yfir landamæri efla þær alþjóðleg áhrif Norðurlanda.
Staðreyndir um norrænu fjárfestingarstofnanirnar
Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) var stofnaður árið 1976 og er í eigu norrænu landanna og Eystrasaltsríkjanna. Bankinn fjárfestir í verkefnum innan einkageirans á vaxtarmörkuðum. Bankinn beinir sjónum sínum að fyrirtækjum sem vilja ekki aðeins vinna að fjárhagslegum vexti heldur sýna einnig af sér mikla umhverfislega og samfélagslega ábyrgð.
Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) veitir loftslagsfjármögnun til verkefna á sviði loftslagsaðlögunar og -mildunar, einkum á þeim svæðum sem viðkvæmust eru fyrir loftslagsbreytingum. Frá stofnun sjóðsins árið 1988 hefur hann stuðlað að jákvæðri þróun í ríkjum í suðurhluta heimsins.
Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) var stofnað árið 1990 og beinir sjónum sínum að verkefnum sem hafa bein jákvæð umhverfisleg áhrif, einkum á nærsvæðum Norðurlanda, svo sem í Austur-Evrópu og á Norðurskautssvæðinu, en einnig á heimsvísu. Í gegnum árin hefur félagið fjármagnað mörg verkefni í tengslum við endurnýjanlega orku, meðhöndlun úrgangs, mengunareftirlit og hreinsun vatns.