Nordic Sustainable Construction: Norrænn árangur vekur athygli í ESB
Hvernig geta Norðurlönd í sameiningu leitt umskiptin yfir í losunarlítinn byggingariðnað og náð fram hagkvæmri nýtingu efnis? Framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar er að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Skortur á tilföngum, þörfin á hringrásarhugsun og nýting núverandi byggingarmassa eru aðkallandi úrlausnarefni í öllum norrænu löndunum.
Í erindi sínu á málþinginu sagði Dan Koivulaakso, deildarstjóri hagvaxtar- og loftslagsmálasviðs Norrænu ráðherranefndarinnar, byggingariðnaðinn vera einn af lykilþáttunum í vinnunni að framtíðarsýninni.
„Við hjá Norrænu ráðherranefndinni munum áfram vinna að loftslagsaðlögun og styðja við lausnir sem varða hina þríþættu ógn gegn jörðinni, þ.e. loftslagsmál, líffræðilega fjölbreytni og mengun. Byggingariðnaðurinn er einn af þeim lykilþáttum sem þarf að huga að og allur árangurinn sem náðst hefur í tengslum við Nordic Sustainable Construction hefur nú þegar reynst mikilvægur í þessu augnamiði.“
Norrænn verkfærakassi fyrir sjálfbæran byggingariðnað
Helstu niðurstöður verkefnisins hafa verið teknar saman í „verkfærakistu“. Þar má meðal annars kynna sér nánar málefni á borð við samræmda norræna löggjöf um lífsferilsgreiningar, hringrásarmiðuð viðskiptalíkön og sjálfbært byggingarefni.
Evrópa fylgist með
Verkefnið hefur vakið athygli. Á undanförnum fjórum árum hefur framkvæmdastjórn ESB horft til verkefnisins varðandi leiðir að umskiptum í evrópskum byggingariðnaði.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmastjórnar ESB, hrífst mjög af þeim samlegðaráhrifum sem verkefnið hefur skapað:
„Byggingar í umhverfi okkar hafa áhrif á heilbrigði okkar og velferð og einnig loftslagið og umhverfið. Nýsköpun í efnisvali, stafvæðingu og hringrásarhugsun skiptir sköpum þegar kemur að því að bæta byggingaraðferðir okkar. Samstarfsverkefnið Nordic Sustainable Construction er gott dæmi um það hvernig við getum sameinað loftslagsvernd, nýsköpun og samkeppnishæfni í byggingariðnaðinum og hvernig við innleiðum þessi gildi í hið nýja evrópska Bauhaus: Sjálfbærni, inngilding og fegurð.“
Karen Ellemannframkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, er einnig ánægð með árangurinn:
„Það gleður mig að geta sagt að norrænt samstarf um að skapa sjálfbæran byggingariðnað efli ekki aðeins Norðurlönd heldur sé jafnframt eftirspurn eftir reynslu okkar og greiningum innan ESB og annars staðar í heiminum.“ Það er mikilvægara en nokkru sinni að við skiptumst á árangarsríkum lausnum og veitum hvert öðru innblástur,“ segir hún.
Hin nýja framkvæmdastjórn ESB hefur hafið vinnu sína og mun starfa til 2029 og í fyrsta sinn hefur verið tilnefndur fulltrúi með ábyrgð á húsnæðis- og orkumálum, þ.e. Dan Jørgensen, fyrrverandi loftslagsráðherra Danmerkur.
Norræn áætlun um sjálfbæran byggingariðnað
Nordic Sustainable Construction er fjögurra ára verkefni (2021-2024) á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem markmiðið er að Norðurlönd verði í fararbroddi á sviði sjálfbærs og samkeppnishæfs byggingariðnaðar.