Hringrásarhagkerfi á Norðurlöndum

Ljósmyndari
Unsplash
Hringrásarhagkerfið er annar valkostur við það línulega líkan sem er ráðandi í heimshagkerfinu. Í hringrásarhagkerfi eru vörur hannaðar þannig að þær endist í langan tíma og að hægt sé að gera við þær, endurnota og endurvinna. Þannig er hægt að nota sömu efnin aftur og aftur, sem dregur úr sóun, auðlindanotkun og úrgangi.

Norræna samstarfið hefur í mörg ár beint sjónum að hringarásarhagkerfinu og verið í fararbroddi í þekkingaröflun fyrir stefnumótun bæði á Norðurlöndum og í Evrópusambandinu. Áætlunin um hringrásarhagkerfi á Norðurlöndum byggir ofan á þá reynslu til að flýta frekar fyrir umskiptum yfir í hringrásarhagkerfi á svæðinu. Það felur í sér vöruhönnun, framleiðsluaðferðir, viðskiptalíkön og hegðun neytenda.

Áætlunin stuðlar að markmiðum Norðurlanda um hringrásarhagkerfi, sem og evrópskum og alþjóðlegum ferlum, með því að takast á við vistspor og auðlindanotkun.

Áherslusvið

- Þróa framlag Norðurlanda til reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um visthönnun fyrir sjálfbærar vörur og staðla lífsferlismat.

- Skapa ramma utan um norrænt samstarf til langs tíma að styðja við fyrirbyggjandi stefnur til að samræma reglugerðir ESB og norrænar áherslur.

- Auka þekkingu og upplýsingar um endurvinnslu og endurnotkun mikilvægra hráefna til að bæta möguleika á endurheimt úr úrgangi.

- Þróa árangursríka stefnu fyrir hringrásarhagkerfi með dýpri skilningi á reglustjórntækjum og fjármögnunarleiðum.

- Stuðla að þverlægum aðgerðum, svo sem norrænni samvinnu um hringrásartextílefnum og sjálfbærri netverslun.

Umskiptin yfir í hringrásarhagkerfi krefjast kerfisbundinna breytinga sem rúmast ekki innan einnar áætlunar. Þess vegna beinir áætlunin sjónum að þeim sviðum sem eru mikilvægust fyrir Norðurlönd, með það að markmiði að stuðla að verðmætum kerfisbreytingum og gefa gott fordæmi fyrir heiminn.