Samskiptapakki fyrir þing Norðurlandaráðs 2024

Tilhører tager foto til Nordisk Råds Session 2019
Ljósmyndari
Johannes Jansson
Viltu hjálpa til við að vekja athygli á þinginu í ár? Hér er örstutt yfirlit yfir samskiptamál meðan á þinginu stendur. Leyfilegt er að nota myndirnar án endurgjalds.

Ábendingar um hvað er hægt að gera:

1. Kynntu þér upplýsingarnar á vef þingsins

Á vef þingsins er að finna hagnýtar upplýsingar, fréttir, dagskrá og annað sem tengist þinginu.

2. Notaðu myllumerkin

Taktu þátt í umræðum um norræn stjórnmál á samfélagsmiðlum með því að nota myllumerkin: #nrsession, #nrpol og #nordiskråd.

3. Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum og taktu þátt

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum:

4. Taktu myndir af þinginu og deildu þeim

Deildu þínum eigin myndum og myndskeiðum frá þinginu á Instagram og öðrum samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #nrsession.

 

Við verðum jafnframt með ljósmyndara á staðnum. Heimilt er að nota þær myndir án endurgjalds ef það er ekki í atvinnuskyni og að því gefnu að ljósmyndara sé getið (NN/norden.org). Þær verða aðgengilegar frá:

5. Deildu efni um þingið

Einföld leið til að auka sýnileika þingsins er að deila fréttunum sem við birtum á norden.org.

6. Fylgstu með beinu streymi og sendu inn athugasemdir.

Allir þingfundir verða í beinu streymi. Tengill verður birtur.