Formennskuáætlun Svía í Norðurlandaráði 2025 beinir sjónum að norrænu notagildi og samheldni
Maria Stockhaus er varaforseti og Heléne Björklund er forseti Norðurlandaráðs árið 2025
Samheldni er enn mikilvægari á ólgutímum
Sú óvissa sem nú er upp í heimsmálunum kallar á enn meira samstarf og norræna samheldni, segir í sænsku formennskuáætluninni. Árásarstríð Rússlands í Úkraínu, stríðið í Mið-Austurlöndum og loftlagvandinn gera það að verkum að öryggi verður ofarlega á dagskrá á Norðurlöndum árið 2025.
„Við lifum á ólgutímum og samheldni og samvinna er mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Við þörfnumst hvers annars í norrænu fjölskyldunni og við viljum styrkja og þróa okkar tengsl til þess að við verðum sterkari sameinuð, jafnvel á krísutímum,“ segir Heléne Björklund, nýkjörinn forseti Norðurlandaráðs.
Norrænt notagildi
Auk þess að leggja áherslu á öryggi og samheldni verður á formennskuári Svíþjóðar einnig lögð áhersla á það sem nefnt er norrænt notagildi. Það snýst um að ryðja stjórnsýsluhindunum úr vegi, fjárfesta í þekkingu og nýsköpun og stuðla að samþættum norrænum vinnumarkaði.
„Við munum leggja áherslu á grundvöll norræna samstarfsins, norrænt notagildi og markmið okkar um að verða samþættasta og sjálfbærasta svæði heims árið 2030“, segir Maria Stockhaus, nýkjörinn varaforseti Norðurlandaráðs.
Mikilvægt að tengja inn í löndin
Í formennskuáætluninni segir að norræn málefni séu einnig innanríkismál. Mikilvægt sé að þau mál sem Norðurlandaráð fæst við séu einnig tengd inn í nefndir þjóðþinganna. Einnig er bent á að mikilvægt sé að þingmenn Norðurlandaráðs séu vel kunnugir þeim stjórnsýsluhindrunum sem fyrir eru til að þeir geti einbeitt sér að því að auðvelda Norðurlandabúum að búa, starfa og stunda nám á Norðurlöndum og fyrirtækjum að starfa á öllu svæðinu.