Þessar ákvarðanir voru teknar á Norðurlandaráðsþingi 2024

15.11.24 | Fréttir
Ljósmyndari
Eythor Arnason/norden.org
Þing Norðurlandaráðs í ár var haldið í Reykjavík dagana 28.–31. október. Á þinginu fjallaði ráðið um fjölda tillagna frá fagnefndum og forsætisnefnd ráðsins. Þær ákvarðanir sem teknar eru á þinginu eru sendar sem tilmæli til Norrænu ráðherranefndarinnar eða ríkisstjórna landanna.

Stuðningur við endurskoðun Helsingforssamningsins

Eitt af þeim málum sem hafa verið ofarlega á baugi undanfarið ár er tillaga frá forsætisnefnd Norðurlandaráðs um að uppfæra Helsingforssamningurinn, sem opinbert norrænt samstarf er byggt á og kveður á um störf Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar. Tillagan var samþykkt á þingfundi. Meðal annars er lagt til að varnar- og öryggismál verði hluti af samstarfinu, að fjallað verði um loftslagsmál í samningnum og að Færeyjar, Grænland og Álandseyjar fái aukin tækifæri til þess að taka þátt í samstarfinu til jafns við hin löndin. Næst taka norrænu ríkisstjórnirnar afstöðu til tilmæla ráðsins.

Tilmæli um norræna öryggismálanefnd

Norðurlandaráð vill að norrænu löndin setji saman varnar- og öryggismálanefnd sem norrænu þjóðþingin eigi einnig sæti í. Meðal annars er lagt til að nefndin skoði möguleikana á nánara samstarfi í tengslum við Norðurskautssvæðið og Eystrasaltið og varðandi fjölþátta hernað og netöryggismál.

Bann við námuvinnslu á djúpsjávarbotni

Á þinginu samþykkti ráðið tillögu frá norrænu sjálfbærninefndinni þar sem þeim tilmælum er beint til norrænu landanna að hætta vinnslu jarðmálma á hafsbotni á alþjóðlegum hafsvæðum á meðan umhverfislegar, félagslegar og efnahagslegar afleiðingar hennar hafa ekki verið rannsakaðar að fullu. 

Nánar um allar 23 ákvarðanirnar

Hér fyrir neðan má nálgast lista yfir öll mál og atkvæðagreiðslur á þinginu. Jafnframt má finna tengla á hvert mál á skandinavísku, finnsku og íslensku.