Samstarf um sjálfbæra vöruflutninga

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org
Draga verður úr umhverfisáhrifum vöruflutninga og samsettir flutningar geta þar gegnt lykilhlutverki.

Í samsettum flutningum felst að nota mismunandi leiðir til að flytja varning, svo sem flutningabíla, lestar og skip, og eiga samstarf um að koma þessum varningi á áfangastað. Til að vöruflutningar verði sjálfbærari verður hver leið til flutninga að verða sjálfbærari og samþætta ber mismunandi leiðir.

Í ljósi fyrri vinnu innan norræns samstarfs steðja þó ýmsar áskoranir að samsettu flutningakerfi. Þróa þarf tækni, innviði og hvatakerfi en breytingar á hegðun og aukið samstarf geta einnig stuðlað að aukinni notkun samsettra flutninga.

Í öðrum áfanga samstarfsáætlunarinnar um sjálfbæra vöruflutninga er tekist á við þessar áskoranir með því að byggja upp sameiginlegan skilning á hindrunum og tækifærum á leið til sjálfbærra samgangna. Áætlunin stuðlar að samstarfi ýmissa aðila á Norðurlöndum til að auka afkastagetu og sjálfbærni í samgöngum og styðja við þróun sjálfbærra kosta fyrir vöruflutninga.

Áherslusvið

- Koma á fót norrænum samstarfshópi sem skoðar aðstæður, sjónarmið og hagsmuni hvers lands.

- Gera könnun þar sem afkastageta samsettra flutninga er borin saman við flutninga með flutningabílum á völdum leiðum, lýsa áhrifum gildandi og fyrirhugaðrar stefnu og reglugerða á samsetta flutninga, og meta umfang núverandi og mögulegrar aukningar á samsettum flutningaleiðum.

- Innleiða aðgerðir sem stuðla að samstarfi aðila á Norðurlöndum um samsetta flutninga.

- Vinna tilraunaverkefni til að auðvelda, einfalda eða auka hlut samsettra flutninga.

- Styðja þróun flutningalausna meðal haghafa.

Í áætluninni verður lögð áhersla á það hvernig flutningageirinn sjálfur getur haft áhrif, einkum hvernig hægt er að nýta núverandi flutningskerfi fremur en að reiða sig á breytingar og þróun innviða og stefnumótunar.