Arvid Karell kjörinn forseti Norðurlandaráðs ungmenna 2026
Karell er frá Korsholm í Finnlandi og er fulltrúi ungmennasamtaka Kristilegra demókrata á Norðurlöndum. Undanfarin tvö ár hefur hann verið varamaður í forsætisnefnd Norðurlandaráðs ungmenna og hlaut dynjandi lófatak er hann var kjörinn forseti.
„Á tímum þegar heimurinn virðist óstöðugur er mikilvægara en nokkru sinni að ungt fólk finni von og trú á framtíðina. Norðurlandaráð ungmenna er sameiginleg rödd ungs fólks og ég vil vinna að framtíð þar sem er pláss og hlutverk fyrir alla,“ segir hinn verðandi forseti.
Karell tekur formlega við embætti í janúar 2026 en mun nýta næstu mánuði til að búa sig undir hið nýja hlutverk.
Metfjöldi ályktana frá norrænum ungmennum
Þing Norðurlandaráðs ungmenna í ár fór fram í hinum sögufræga þingsal Förstakammarsalen í sænska þinghúsinu. 53 ályktanir voru afgreiddar á þinginu en það er met. Til samanburðar voru 32 ályktanir afgreiddar á þinginu í fyrra.
Málefnin voru fjölbreytt, allt frá ókeypis tíðavörum í skólum og lögleiðingu hvíts munntóbaks til viðurkenningar á menntun í lögvörðum starfsgreinum á borð við læknisfræði og sálfræði um öll Norðurlönd.
Meðal annars samþykkti Norðurlandaráð ungmenna að vinna að því að grænlenska, færeyska og samísk mál fái jafna stöðu á við hin norrænu tungumálin þannig að allir geti tekið þátt í norrænu samstarfi á móðurmáli sínu.
Einstök ungmennasamtök með aðkomu að norrænum ákvörðunum
Norðurlandaráð ungmenna er vettvangur stjórnmálasamtaka ungs fólks á Norðurlöndum og hefur aðkomu að ákvarðantökuferlinu í Norðurlandaráði. Þar getur ungt fólk skipst á hugmyndum og skoðunum og komið mikilvægum málefnum sem snerta ungt fólk á Norðurlöndum á dagskrá norræns samstarfs.
Ályktanir sem samþykktar eru á þinginu eru teknar upp á fundum Norðurlandaráðs þar sem Norðurlandaráð ungmenna á fulltrúa með rétt til þess að taka til máls. Sumar af tillögunum geta á endanum orðið að, eða orðið hluti af, opinberum tilmælum frá Norðurlandaráði til norrænu ríkisstjórnanna.
Ný norræn ungmennaverðlan
Norrænu ungmennaverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn á þinginu í ár. Með verðlaununum vill Norðurlandaráð æskunnar vekja athygli á einstaklingum og samtökum sem leggja eitthvað sérstakt af mörkum í þágu ungs fólks á Norðurlöndum. Fyrstu verðlaunin runnu til Nordjobb.