Aðlögun og gott vinnuumhverfi á að laða fleiri Norðurlandabúa út á vinnumarkaðinn
Norrænu ríkisstjórnirnar eru sammála um þau málefni á sviði vinnumála sem á að vinna saman um næstu fjögur árin. Lesa má um áherslur þeirra í nýju samstarfsáætluninni um vinnumál sem tekur gildi um þessar mundir.
Löndin munu starfa saman á fjórum áherslusviðum:
- Að auka atvinnuþáttöku hópa sem standa höllum fæti og auka jafnvægið milli framboðs og eftirspurnar á hæfni.
- Að tryggja gott vinnuumhverfi bæði fyrir konur og karla þannig að fleiri treysti sér til að vinna lengur.
- Að standa vörð um norræna vinnumarkaðsmódelið sem byggir á þremur aðilum vinnumarkaðarins og tryggja gott jafnvægi milli sveigjanleika og starfsmannaverndar.
- Að efla innkomu á vinnumarkaðinn, aðlögun og frjálst flæði á norræna vinnumnarkaðinum.
Löndin læra hvert af öðru
Á þessum sviðum munu löndin kanna, greina og ræða reynslu hvers annars og bestu aðferðir. Og - þegar það á við - móta sameiginlega stefnu og markmið.
Nýja samstarfsáætlunin tekur gildi þegar Svíþjóð tekur við formennsku í ráðherranefndinni. Norrænu ráðherranefndinni í vinnumálum er stýrt af Ylvu Johansson, ráðherra vinnumarkaðsmála og móttöku innflytjenda í Svíþjóð.
Áhersla á konur af erlendum uppruna
Hún mun í vor kynna þekkingu sem safnað hefur verið um innkomu kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaðinn og hún verður einnig gestgjafi á ráðstefnum um vinnumarkað framtíðarinnar.
„Norræna vinnumarkaðsmódelið virkar vel og vekur nú mikinn áhuga alþjóðasamfélagsins. Á formennskutíma okkar verður það þróað það með því að leggja áherslu á vinnumarkað framtíðarinnar og innkomu kvenna sem eru nýfluttar til Norðurlandanna á vinnumarkaðinn,“ segir Ylva Johansson.
Norðurlöndin eru EINN vinnumarkaður
Í samstarfsáætluninni er það undirstrikað að sameiginlegur vinnumarkaður er hornsteinn norræns samstarfs og að fjölmennt og hæft vinnuafl er mikilvægasta auðlind Norðurlandanna.
Hún varpar einnig ljósi á allnokkrar áskoranir, til dæmis hvernig stafræn tæknivæðing, aukin hnattvæðing og hækkandi meðalaldur fólks mun hafa áhrif á störf í framtíðinni.