Algengt að listamenn á Norðurlöndum verði fyrir hótunum, ofbeldi og áreitni
Einstök skýrsla
Skýrslan Hótanir, ofbeldi og áreitni gagnvart listamönnum og rithöfunum á Norðurlöndum sem gefin er út af Kulturanalys Norden er fyrsta skýrslan sem fjallar um reynslu listamanna og rithöfunda af hótunum, ofbeldi og áreitni í norrænu löndunum, umfang vandans og afleiðingar hans.
„Niðurstöðurnar sýna að mörg þeirra sem hafa upplifað þetta telja að það hafi takmarkað listrænt frelsi þeirra en jafnframt segja mörg að þau hafi orðið ákveðnari í því að tjá sig með listrænum hætti,“ segir Sofia Arkhede, sérfræðingur hjá Kulturanalys Norden sem stendur að skýrslunni.
Rannsóknin sem skýrslan er byggð á var unnin í samstarfi við samtök listafólks og rithöfunda og samanstóð af átta könnunarlistum. Alls svöruðu 3184 listamenn og rithöfundar frá Danmörku, Íslandi, Noregi og Svíþjóð.
Hótanir, ofbeldi og áreitni eru vandamál
Svarendur frá hinum mismunandi samtökum lýsa mismunandi reynslu. Af þeim sem svöruðu sögðust á milli 36 og 61 prósent einhvern tíma hafa upplifað hótanir, ofbeldi eða áreitni í tengslum við störf sín og á milli 10 og 25 prósent höfðu orðið fyrir slíku á síðustu tólf mánuðum. Hæst var hlutfallið á meðal danskra sviðslistamanna sem tóku þátt í rannsókninni en 61 prósent þeirra hafði upplifað hótanir eða áreitni einhvern tíma og 25 prósent á síðustu tólf mánuðum.
„Kortlagning okkar sýnir að hótanir, ofbeldi og áreitni í garð listafólks og rithöfunda er vandamál sem er til staðar í norrænum löndunum. Neikvæðar afleiðingar þessa sem nefndar eru í skýrslunni eru sérlega alvarlegar, ekki aðeins fyrir þá listamenn sem fyrir þessu verða heldur samfélagið í heild ef listamenn og rithöfundar sneiða hjá ákveðnum efnum eða draga sig í hlé í kjölfar áreitnim“ segir Malin Weijmer, forstöðukona Kulturanalys Norden.
Rannsóknin sem skýrslan Hótanir, ofbeldi og áreitni gagnvart listamönnum og rithöfundum á Norðurlöndum var unnin í samstarfi við átta samtök listafólks og rithöfunda. Eftirfarandi samtök sendu meðlimum sínum spurningalista: Billedkunstnernes Forbund (Danmörk, myndlistarmenn), Dansk Artist Forbund (Danmörk, sviðslistamenn), Konstnärernas Riksorganisation (Svíþjóð, myndlistarmenn), Sveriges Författarförbund (Svíþjóð, rithöfundar), Creo (Noregur, sviðslistamenn), Den norske Forfatterforening (Noregur, rithöfundar), Rithöfundasamband Íslands (Ísland, rithöfundar) og Samband íslenskra myndlistarmanna (Ísland, myndlistarmenn).
Kulturanalys Norden er norræn þekkingarmiðstöð um menningarmál sem Norræna ráðherranefndin stendur að. Kulturanalys Norden heyrir undir Myndigheten för kulturanalys í Svíþjóð.
Upplýsingar fyrir blaðamenn
Malin Weijmer, sérfræðingur, greinandi, verkefnastjóri Kulturanalys Norden, malin.weijmer@kulturanalys.se, +46 31-395 20 13
Sofia Arkhede, sérfræðingur, talnagögn, sofia.arkhede@kulturanalys.se, +46 31-395 20 14