Alþjóðlegir lykilaðilar taka þátt í norrænum fundi loftslags- og umhverfisráðherra

13.05.26 | Fréttir
Ljósmyndari
Norden.org

Ráðherrarnir fengu í heimsókn Astrid Schomaker, framkvæmdastjóra samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni, og Leenu Ylä-Mononen, framkvæmdastjóra Umhverfisstofnunar Evrópu.

Sífellt aukið álag á marghliða umhverfissamstarf var í brennidepli þegar norrænir umhverfis- og loftslagsráðherrar hittust í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Á fundinum tóku einnig þátt Astrid Schomaker, framkvæmdastjóri samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni, og Leena Ylä-Mononen, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Evrópu.

Alþjóðasamfélagið stendur nú frammi fyrir því sem Sameinuðu þjóðirnar kalla þríþætta hnattræna umhverfiskrísu: loftslagsbreytingum, tapi á líffræðilegri fjölbreytni og mengun. Orsakir og afleiðingar þessara vandamála tengjast náið, magna hver aðra upp og rannsóknir benda til þess að bráðra aðgerða sé þörf.

 

Á sama tíma er marghliða samstarf á sviði umhverfis- og loftslagsmála undir þrýstingi. Það stafar bæði af flóknara og spennuþrungnara geopólitísku landslagi, aukinni samkeppni um auðlindir og tækni og ekki síst fjármögnunarvanda.

 

Þessi vandi var til umræðu á fyrsta fundi ársins hjá norrænu loftslags- og umhverfisráðherrunum, þar sem bæði Astrid Schomaker, framkvæmdastjóri samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni, og Leena Ylä-Mononen, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Evrópu, tóku þátt. Á fundinum var meðal annars rætt hvernig norrænu löndin geta stutt marghliða umhverfis- og loftslagssamstarf. Áhersla var lögð á samningaviðræður um plast, stærri pólitísk verkefni innan ESB og komandi samningaviðræður á vettvangi samningsins um líffræðilega fjölbreytni á COP17 í Armeníu í október.

„Norræni hæfileikinn til samstarfs og til að tryggja samþættar pólitískar lausnir getur verið innblástur fyrir lönd alls staðar, óháð getu þeirra. Þótt fjárveitingar séu undir þrýstingi megum við ekki missa sjónar á langtímaáskoruninni sem felst í hnignun náttúrunnar. Ef norrænu löndin geta staðið við skuldbindingar sínar, og jafnvel styrkt þær, mun það skipta gríðarlegu máli,“ segir Astrid Schomaker, framkvæmdastjóri samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.

Norræni hæfileikinn til samstarfs og til að tryggja samþættar pólitískar lausnir getur verið innblástur fyrir lönd alls staðar, óháð getu þeirra.

Astrid Schomaker, framkvæmdastjóri samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni

„Norrænt samstarf á sviði umhverfis- og loftslagsmála vinnur markvisst að því að styðja vísindalega grundvallað starf í tengslum við helstu samninga Sameinuðu þjóðanna og stærri mál innan ESB. Ég er ánægð með að geta staðfest að framlag okkar er talið verðmætt, bæði á Norðurlöndum og á alþjóðavettvangi,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

Sameiginleg yfirlýsing

Umræður um alþjóðlegt samstarf voru einnig ráðandi á síðasta fundi norrænu loftslags- og umhverfisráðherranna í október. Þar gáfu þeir út yfirlýsingu sem staðfesti skuldbindingu þeirra við marghliða samstarf og óskoraðan stuðning við alþjóðlegt kerfi byggt á reglum sem grundvöll að lausn hnattrænna umverfisógna.