Þessar ákvarðanir voru teknar á þingi Norðurlandaráðs 2025
Á þingi Norðurlandaráðs 2025 voru samþykkt ýmsar tillögur sem ætlað er að efla samstarfið þvert á landamæri og geira, allt frá auknu samstarfi um almannaþjónustu og nýrrar stefnu í tengslum við stjórnsýsluhindranir til sameiginlegra aðgerða í umönnun aldraðra og umhverfisverndar á norðurslóðum.
Þau mál sem samþykkt eru á þinginu eru send sem tilmæli til Norrænu ráðherranefndarinnar eða beint til norrænu ríkisstjórnanna.
Hér eru nokkur þeirra mála sem samþykkt voru:
Færeyjar, Grænland og Álandseyjar fá föst sæti í stjórn Norðurlandaráðs
Á þinginu samþykkti Norðurlandaráð að stíga sögulegt skref í átt til þess að gera samstarfið meira inngildandi og í takt við tímann. Breyting á starfsreglum ráðsins þýðir að Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá nú föst sæti í forsætisnefnd Norðurlandaráðs sem er æðsta stofnun ráðsins á milli þinga.
Ný norræn stefna um afnám stjórnsýsluhindrana
Norðurlandaráð hyggst setja kraft í vinnuna við að fjarlægja litlar en hvimleiðar skrifræðislegu hindranir sem enn valda fólki og fyrirtækjum sem vilja lifa og starfa þvert á norræn landamæri erfiðleikum. Ný tilmæli um stefnuna Frjáls för á Norðurlöndum 2026–2030 var samþykkt einróma á þinginu í Stokkhólmi.
Aukið norrænt samstarf á milli ríkisfjölmiðla
Norðurlandaráð er einhuga um að beina þeim tilmælum til Norrænu ráðherranefndarinnar að biðja norræna ríkismiðla um að kanna hvernig þeir geti aukið framboð á efni frá öðrum norrænum löndum á rásum sínum. Tilmælin ná einnig til aðgerða til að efla tungumálaskilning á Norðurlöndum, til dæmis með notkun skjátexta á öðrum norrænum málum.
Norræna þekkingar- og menningarnefndin náði einnig í gegn tilmælum um að auka bæði framleiðslu á samísku námsefni og menntun samískra kennara. Tillagan á að tryggja réttindi samsískra barna og verður nú send til ríkisstjórna Noregs, Svíþjóðar og Finnlands.
Samnorræn stefna um öldrunarþjónstu í framtíðinni.
Fjölgun eldri borgara er ein stærsta áskorunin sem Norðurlönd standa frammi fyrir í velferðarmálum. Eftir því sem eldri borgurum fjölgar og starfsfólki í umönnunargeiranum fækkar liggur á að finna sameiginlegar lausnir. Nú vill Norðurlandaráð að norrænu löndin sameinist um stefnu varðandi öldrunarþjónustu á Norðurlöndum í framtíðinni með áherslu á gæði, hreyfanlegt vinnuafl, stafræna inngildingu og meðákvörðunarrétt eldri borgara.
Reglur um losun frá skipaumferð á norðurslóðum
Á þinginu samþykkti Norðurlandaráð tillögu um að setja reglur um notkun heimskautaeldsneytis til verndar umhverfinu á norðurslóðum. Loftslagsváin er tvíþætt á Norðurslóðum. Eftir því sem ísinn bráðnar meira eykst skipaumferð um svæðið og þar með einnig losun gróðurhúsalofttegunda og sótagna (black carbon). Þegar sótið leggst yfir ísinn og snjóinn endurkastast sólarljósið síður og það hefur í för með sér að hlýnunin eykst enn frekar.
Meirihluti Norðurlandaráðs samþykkti að beina þeim tilmælum til norrænu ríkisstjórnanna að vinna að því að Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) viðurkenni heimskautaeldsneyti í MARPOL-samningnum og að teknar verði upp hertar reglur fyrir skip sem sigla um siglingaleiðir á norðurslóðum sem tilheyra Norðurlöndum.
Nánar um allar ákvarðanir
Smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til að sjá lista yfir allar ákvarðanir og niðurstöður atkvæðagreiðslna um öll mál sem afgreidd voru á þinginu. Á síðunni er einnig að finna tengla á málin á skandinavísku, finnsku og íslensku.