Aukin áhersla á frjálsa för á Norðurlöndum

10.04.25 | Fréttir
Silja Line og Pommern, Mariehamn
Ljósmyndari
Eivind Sætre/norden.org

Frjáls för á Norðurlöndum verður áfram forgangsmál í formennskutíð Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni.

Á árinu 2024 var aukinn kraftur settur í vinnuna við að greiða götu frjálsrar farar á Norðurlöndum. Meðal annars var samþykkt ný sex ára áætlun um frjálsa för. Á sama tíma fékk upplýsingaþjónustan Info Norden metfjölda heimsókna á vefsvæði sitt.

Þetta kemur fram í ársskýrslum Stjórnsýsluhindranaráðsins og Info Norden sem komu út fyrir stuttu.

Meðal þess sem fram kemur í ársskýrslunum er:

  • að norrænu samstarfsráðherrarnir samþykktu nýja samstarfsáætlun fyrir árin 2025–2030 þar sem aukinn metnaður er settur í vinnuna í tengslum við hreyfanleika og afnám stjórnsýsluhindrana.
  • að samstarfsráðherrarnir samþykktu einnig sérstaka sex ára áætlun um frjálsa för á Norðurlöndum.
  • að áætlunin felur meðal annars í sér að Info Norden og upplýsingaþjónusturnar á landamærasvæðunum, Grensetjänsten NO-SE, Gränstjänsten SE-FI-NO og Øresunddirekt, falli undir áætlunina.
  • að á árinu 2024 hafi Stjórnsýsluhindranaráðið unnið að afnámi 35 stjórnsýsluhindrana og að 11 af þeim hafi klárast.
  • að Stjórnsýsluhindranaráðið hafi jafnframt unnið að fimm þemasviðum sem tengjast sérstaklega stærri úrlausnarefnum varðandi hreyfanleika og samþættingu á Norðurlöndum, þ.e. stafvæðingu, samstarfi þjóðskráa, tölfræðiupplýsingum um landamærasvæðin, skattatengdum stjórnsýsluhindrunum og lífeyrismálum.
  • að vefsíður Info Norden hafi verið heimsóttar 2,5 milljón sinnum árið 2024 og síðuflettingar hafi verið 3 milljónir, sem er aukning um 25 prósent frá 2023 og mesta umferð nokkru sinni.
  • að upplýsingaþjónusturnar hafi fengið samtals 3,9 milljónir heimsóknir á vefsvæði sín og verið í persónulegu sambandi við um það bil 41.500 einstaklinga.

    Svíþjóð fór með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2024 og lagði mikla áherslu á frjálsa för á milli norrænu landanna. Markmiðið er að uppfylla framtíðarsýnina um að Norðurlönd verði samþættasta og sjálfbærasta svæði heims árið 2030.

Áfram áhersla á málefni landamæra

Finnland og Álandseyjar leggja líka mikla áherslu á hreyfanleika í ár. Álandseyjar eru í nánum tengslum við Svíþjóð og margir ferðast á milli Álandseyja og Svíþjóðar vegna vinnu og þar eru stjórnsýsluhindranir alltaf í brennidepli.

Stjórnsýsluhindranir voru nú síðast á dagskrá dagana 10.–11. apríl þegar embættismenn frá öllum Norðurlöndum, hin svokallaða embættismannanefnd, kom saman í Kastelholm á Álandseyjum til að fjalla um málefni á sviði dómsmála. Verkefni nefndarinnar er að undirbúa fundi norrænu dómsmálaráðherranna og fylgja ákvörðunum þeirra eftir.

Á meðal þeirra sem sátu fundinn voru Álendingurinn Fredrik Karlström, formaður Stjórnsýsluhindranaráðsins, sem greindi frá störfum ráðsins.