COP29: Dagskrá norræna hliðarviðburðarins er komin út
Ljósmyndari
Andreas Omvik
Kynntu þér fleiri en 50 viðburði um fjölbreytt málefni sem tengjast loftslagsbreytingum og -lausnum – allt frá nýsköpun í loftlagsfjármálum og þátttöku ungmenna til matvælakerfa og grænnar orku. Horfðu á alla viðburðina í beinni útsendingu frá 12. til 22. nóvember.
Í ár mun norræni skálinn á COP29 leggja sérstaka áherslu á vegferð svæðisins í átt að kolefnishlutleysi. Vertu með okkur er við skoðun nánar hvernig við getum búið til framtíð velsældar, sjálfbærni og réttlætis.
Á dagskrá:
- Viðburðir: Fleiri en 50 viðburðir pakkaðir af stjórnmálaumræðu og nýjustu rannsóknum sumra af virtustu vísindamönnum, háskólum og þekkingarstofnunum heims.
- Ný vísindi: Nýjustu rannsóknir sumra af virtustu vísindamönnum, háskólum og þekkingarstofnunum heims.
- Margar raddir: Hittu leiðtoga í viðskiptum, ungt fólk, aðgerðasinna, sérfræðinga, loftlagsvísindamenn, borgarleg samtök, félagasamtök og stjórnmálaleiðtoga.
- Sýning: Time Out! Rethinking Construction. Hvernig getum við byggt innan marka plánetunnar? Kíktu á sýninguna og fáðu innblástur af róttækri hringrásarhugsun, byggingum úr við og öðrum valkostum við steinsteypu.
Aðgangur að öllum viðburðum á netinu
Áreiðanleg nettenging er allt sem þarf til að fylgjast með. Öllum viðeigandi viðburðum verður streymt í beinni á Norden.org.
Tengiliður