COP30: Norrænir ráðherrar senda frá sér yfirlýsingu um hlutverk fæðukerfa og lífhagkerfis í baráttunni gegn loftslagsbreytingum

10.11.25 | Fréttir
MR-FJLS kuopio 2025

The Nordic Ministers for Fisheries, Aquaculture, Agriculture, Food, and Forestry.

Ljósmyndari
norden.org

Norræna ráðherranefndin um fiskveiðar og fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt.

Á opnunardegi COP30 í Belém kynnir Norræna ráðherranefndin um fiskveiðar og fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt ráðherrayfirlýsingu þar sem lögð er áhersla möguleika fæðukerfa og lífhagkerfis til að sporna við loftslagsbreytingum, bæði með mótvægisaðgerðum og aðlögun.

Kynningin fer fram í norræna skálanum á COP30 í móttöku með Jacob Jensen, matvæla-, landbúnaðar og sjávarútvegsráðherra Danmerkur, og Soili Kangaskorpi, finnskum sendiherra loftslags- og umhverfismála.

Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á þörfina fyrir viðnámsþolnar, fjárhagslega hagkvæmar og sjálfbærar aðfangakeðjur í fæðukerfum okkar sem studdar eru lausnum í anda hringrásarhagkerfis. Yfirlýsingin var samþykkt undir formennsku Finna í Norrænu ráðherranefndinni. 

Þetta er í fyrsta sinn sem Norðurlönd samþykkja yfirlýsingu um matvæli og lífhagkerfi í tengslum við loftslagsbreytingar á loftslagsráðstefnu UNFCCC (skrifstofu rammasamnings SÞ um loftslagsbreytingar).

„Þessi norræna yfirlýsing um lífhagkerfi og matvælakerfi undirstrikar hversu brýnt er að grípa til aðgerða og mikilvægi þeirra nýstárlegu lausna við loftslagsvandanum sem sjálfbært hringrásarhagkerfi býður upp á. Finnar eru ánægðir með að hafa leitt þetta ferli og að hafa fengið öfluga, sameiginlega yfirlýsingu frá Norðurlöndunum,“ segir Sari Essayah, landbúnaðar- og skógræktarráðherra.

Yfirlýsingin undirstrikar einnig mikilvægi alþjóðlegs samstarfs, stefnumörkunar sem byggir á vísindum og inngildingu og samstarfs þvert á atvinnugreinar og samfélög. 

„Á Norðurlöndunum höfum við aukið skilvirkni og afköst í landbúnaði um leið og við höfum dregið úr aðfanganotkun og mengun. Enn er langt í land en við höfum einnig dregið ýmsan lærdóm sem við getum deilt á COP30. Við hlökkum til að leggja okkar af mörkum og öðlast nýja innsýn sem getur styrkt fjölþjóðlegt samstarf enn frekar,“ segir Karen Ellemann.

Þrjú lykilatriði í yfirlýsingunni: 

  1. Ráðherrarnir leggja áherslu á brýnar aðgerðir til að draga úr og laga sig að loftslagsbreytingum með því að tryggja viðnámsþolin, örugg og samkeppnishæf fæðukerfi sem geta staðist alþjóðlegar áskoranir og verndað fæðuöryggi í framtíðinni.
  2. Með nýstárlegu og sjálfbæru hringrásarlífhagkerfi er hægt að ýta undir græn umskipti, verða minna háð jarðefnaeldsneyti og styðja við afkomu samfélaga á hverjum stað.
  3. Norðurlöndin leggja áherslu á öflugt fjölþjóðlegt samstarf, stefnumörkun byggða á vísindum og inngildingu og samstarf milli ríkisstjórna, háskóla, borgaralegs samfélags og frumbyggja.

Móttakan Bioeconomy and Food Systems Reception fer fram klukkan 18–19 í norræna skálanum á bláa svæðinu, D148, Belém, Brasilíu. 

Móttakan er skipulögð af  Norrænu ráðherranefndinni, finnska landbúnaðar- og skógræktarráðuneytinu, danska matvæla-, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu, norska viðskipta-, iðnaðar og sjávarútvegsráðuneytinu og Food Nation,  United Nations Food Systems Coordination Hub, Global Action Network: Sustainable Food from the Ocean and Inland Waters for Food Security and Nutrition.