Dómsmálaráðherrar Norðurlanda snúa bökum saman gegn skipulagðri brotastarfsemi og ógnum gegn réttarríkinu
Ministrene mødtes i Finland den 3-4.juni 2025. Fra højre: Gunnar Strömmer, Astri-Aas Hansen, Leena Meri, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Ingrid Zetterman og Karen Ellemann.
Ráðherrarnir hittust í Finnlandi 3.-4. júní 2025. Frá hægri: Gunnar Strömmer, Astri-Aas Hansen, Leena Meri, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Ingrid Zetterman og Karen Ellemann.
Á fundinum gafst ráðherrunum færi á að miðla reynslu landanna og ræða sameiginlegar lausnir þvert á landamæri. Þessi tvö meginþemu endurspegla þær áskoranir sem Norðurlöndin standa frammi fyrir og undirstrika mikilvægi góðrar samræmingar og sameiginlegra aðgerða.
Á fundinum ræddu norrænu dómsmálaráðherrarnir bein úrræði og aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Meðal annars voru rædd glæpanet sem hafa skapað markað fyrir kaup og sölu á glæpsamlegri þjónustu.
Slík net nýta þá miklu stafvæðingu sem átt hefur sér stað á Norðurlöndum og það traust sem einkennir samfélög okkar. Þessi þróun getur til lengri tíma litið grafið undan trausti almennings á stafrænni þjónustu eins og heilbrigðis-, samgöngu- og skattalausnum. Samhljóða niðurstaða var sú að þörf sé á öflugu samstarfi lögreglu, uppfærðum reglum og innleiðingu nýrrar tækni til að bregðast við þessari þróun.
Áhersla á verndun barna og ungmenna
Eitt af lykilatriðum norræns samstarfs á sviði dómsmála er baráttan gegn skipulagðri glæpastarfsemi og þátttöku barna og ungmenna í glæpum. Undir það svið fellur mansal. Mikilvægur liður á fundinum fólst í miðlun reynslu af aðgerðum gegn mansali, sérstaklega í málum þar sem börn eru fórnarlömb.
Ráðherrarnir ræddu einnig fyrri fundi með stóru tæknifyrirtækjunum og hlutverk þeirra í nýliðun ungs fólks í glæpastarfsemi. Í því samhengi var rætt um eftirfylgni samtala við tæknifyrirtækin og möguleika á að koma málinu áfram innan Evrópusambandsins.
Það sem við upplifðum í Helsinki í dag var fundur afar áhugasamra dómsmálaráðherra sem leita markvisst sameiginlegra norrænna lausna til að berjast gegn glæpastarfsemi og vernda börn og ungmenni – bæði í raunheimum og á netinu.
Viðnámsþróttur réttarríkisins á krísutímum
Annað mikilvægt efni fundarins laut að viðnámsþrótti réttarríkisins, þar með talið undirbúningi fyrir neyðarástand og viðhald reglna réttarríkisins á krísutímum. Málefnið er mjög mikilvægt og tengist starfinu við að efla réttaröryggi og lýðræði með áherslu á að treysta réttarkerfið og viðnámsþrótt lýðræðisins ásamt því að efla hlutdeild almennings í hvoru tveggja.
Einnig var rætt hvernig Norðurlöndin geta unnið saman gegn blönduðum ógnum, svo sem áhrifaherferðum, skemmdarverkum og skipulagðri glæpastarfsemi, sem ógna samheldni samfélags og ríkis og þar með einnig réttarörygginu.