Evrópa verður sterkari með Norðurlöndum
Von der Leyen byrjaði á að þakka fyrir tækifærið til að taka til máls á vettvangi sem hún lýsti sem einni sterkustu birtingarmynd lýðræðis og samstarfs í Evrópu. Hún fjallaði um tengingu hinnar löngu hefðar norrænu landanna fyrir lýðræði, jafnrétti og gagnsæi við Evrópu dagsins í dag.
„Hér í salnum eru ekki aðeins Norðurlandabúar, heldur einnig Evrópubúar,“ sagði von der Leyen.
Hún lagði áherslu á hvernig Norðurlönd hefðu í árhundruð mótað Evrópu á pólitískan, menningarlegan og félagslegan hátt. Meirihluti ræðunnar var engu að síður helgaður öryggi, vörnum og viðbúnaði. Von der Leyen fjallaði um hvernig stríð og ógnir einkenni Evrópu í dag og hrósaði hlutverki norrænu landanna í stuðningnum við Úkraínu.
„Pútín taldi sig geta knésett Úkraínu á þremur dögum. Eftir 1300 daga sýnir landið enn styrk sinn, þökk sé samstöðu og sameinuðu átaki Evrópu.“
Hér í salnum eru ekki aðeins Norðurlandabúar, heldur einnig Evrópubúar
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins áréttaði enn sem fyrr að varanlegur friðarsamningur krefst sterkrar og sjálfstæðrar Úkraínu, og lýsti yfir áframhaldandi stuðningi ESB. Um leið vakti hún athygli á hlutverki Norðurlanda sem drifkrafts viðbúnaðar og samfélagsöryggis.
„Þið á Norðurlöndum vitið að öryggi snýst ekki aðeins um vopn, heldur um viðbúnað. Þið byggið upp viðbúnað á friðartímum, og það er nokkuð sem öll Evrópa ætti að taka sér til fyrirmyndar,“ sagði von der Leyen.
Heléne Björklund, forseti Norðurlandaráðs, lýsir fundinum sem sögulegu augnabliki.
„Fyrst og fremst var frábært að hún mætti. Ursula von der Leyen hefur mikla persónutöfra og hún hélt ótrúlega góða ræðu. Hún lagði áherslu á allt það sem við á Norðurlöndum getum verið stolt af,“ sagði Björklund.
Norðurlönd byggja til framtíðar
Von der Leyen ræddi einnig græn umskipti og samkeppnishæfi Evrópu. Hún sagði norrænu löndun vera í fararbroddi á heimsvísu hvað varðar endurnýjanlega orku og nýja tækni, og tilkynnti um nýjan evrópskan fjárfestingarsjóð til að styrkja grænan iðnað og náttúruverkefni.
Í lok ræðunnar beindi von der Leyen sjónum að norðurslóðum og hlutverki Norðurlanda. Hún nefndi loftlagsbreytingar, nýjar flutningaleiðir og þörfina fyrir nánara samstarf við samfélög á norðurlöndum og á norðurskautssvæðinu. Margir smáir lækir verða að stórri á, sagði hún og notaði sænska máltækið til að leggja áherslu á það. Styrkur Evrópu liggur í samstöðunni.
Hún sýndi fram á hvernig styrkleikar landa okkar bæta hvort annað upp. Á ólgutímum í Evrópu koma Norðurlönd fram sem stöðugt svæði sem hægt er að treysta á.
Heléne Björklund, forseti Norðurlandaráðs, bendir einnig á orð von der Leyen um traust, viðbúnað og styrk samstöðunnar.
„Hún sýndi fram á hvernig styrkleikar landa okkar bæta hvort annað upp. Á ólgutímum í Evrópu koma Norðurlönd fram sem stöðugt svæði sem hægt er að treysta á.“
Björklund telur heimsóknina sýna að augu heimsbyggðarinnar beinist nú að Norðurlöndum.
„Hin landpólitíska staða gerir okkur sýnileg. Sú staðreynd að Ursula von der Leyen kom hingað fær enn fleiri til að sjá mikilvægi okkar. Við þurfum að nýta tækifærið til að sýna fram á þekkingu okkar á heildarvörnum og menningarlegan kraft okkar. Það var gott að hún undirstrikaði einmitt það,“ sagði Björklund.
Ræða Ursulu von der Leyen markaði upphaf norræna leiðtogafundarins, sem í ár fer fram í Stokkhólmi.