Fjögur ár af stríði – áframhaldandi eindreginn norrænn stuðningur við Úkraínu

24.02.26 | Fréttir
Öresundsbron upplyst med Ukrainas flagga
Ljósmyndari
Scanpix.dk
Yfirlýsing forsætisnefndar Norðurlandaráðs í tilefni þess að fjögur ár eru liðin frá allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu:

„Norðurlandaráð ítrekar eindregna fordæmingu sína á allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu. Við stöndum þétt að baki yfirráða Úkraínu yfir landsvæði sínu, fullveldi og réttar íbúanna til að taka ákvarðanir um eigin framtíð.

Norðurlandaráð hefur í nærri 75 ár staðið vörð um lýðræði, alþjóðalög, mannréttindi og frið. Við lýsum yfir eindregnum stuðningi okkar við aðgerðir til að tryggja réttlátan og varanlegan frið í Úkraínu. Frjáls, öflug og lýðræðisleg Úkraína felur í sér öfluga Evrópu.

Við leggjum áherslu á áframhaldandi samstarf við líkt þenkjandi þjóðir til að styðja Úkraínu. Það felur í sér hernaðarlegar og efnahagslegar aðgerðir ásamt aðgerðum við enduruppbyggingu. Vernd mikilvægra og viðkvæmra samfélagsþátta og viðnámsþróttur gegn upplýsingaóreiðu eru aðrir mikilvægir þættir til að ná fram almennu öryggi í bæði Úkraínu og á Norðurlöndunum.

Hugur okkar er hjá úkraínsku þjóðinni, sem í miklum vetrarhörkum hefur orðið að þola hatrammar árásir á borgaralega innviði, sem hafa veikt ástand mannúðarmála í landinu.

Norðurlandaráð mun styðja Úkraínu eins lengi og þörf krefur.“

Frá upphafi stríðsins í Úkraínu árið 2022 hefur Norðurlandaráð lýst yfir stuðningi sínum við Úkraínu. Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, var aðalgestaræðumaður á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík í október 2024. Forseti Norðurlandaráðs hefur fundað með talsmanni Úkraínu, Ruslan Stefanchuk, og árið 2025 hélt sendiherra Úkraínu í Danmörku ræðu fyrir Norðurlandaráð í Kaupmannahöfn.