EXPO 2025: Mikil tækifæri fólgin í því að efla umhverfi fyrir sprotafyrirtæki á milli Japan og Norðurlanda

29.05.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Nordic Circle
Nordic Startup Day er lokið en dagurinn markaði fyrsta samnorræna viðburðinn í norræna skálanum á heimssýningunni EXPO 2025 í Osaka í Japan. Þar kom skýrt í ljós að mikil tækifæri eru fólgin í því að efla samstarf í tengslum við umhverfi sprotafyrirtækja í Japan og á Norðurlöndum.

Í Norræna skálanum, The Nordic Circle, á EXPO 2025 voru sprotafyrirtæki, fjárfestar, háskólar og aðilar sem tengjast vinnumarkaðnuum frá bæði Japan og Norðurlöndum saman komin til að fræðast betur um sprotaumhverfið og fjárfestingartækifæri á Norðurlöndum. Tilgangurinn var að efla samtal og samstarf á milli tveggja af fremstu svæðum heims með tilliti til trausts og tækniþróunar. Sindre Bornstein, framkvæmdastjóri Nordic Innovation, opnaði dagskrána með því að leggja áherslu á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs og sagði eftirfarandi um hlutverk stofnunarinnar í sprotaumhverfinu:

Við erum drifkraftur fyrir nýsköpun á kerfisstigi. Við fylgjum sameiginlegri framtíðarsýn forsætisráðherra Norðurlandanna um að gera Norðurlönd að sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Hlutverk okkar er að styðja við vistkerfi og auðvelda samstarf yfir landamæri til að skapa sjálfbæran vöxt með því að efla frumkvöðlastarf, nýsköpun og samkeppnishæfni innan sem utan Norðurlanda.

Sindre Bornstein, framkvæmdastjóri Nordic Innovation

Norðurlöndin sem aðlaðandi umhverfi fyrir sprotafyrirtæki með alþjóðlega sýn

Norðurlönd eru viðurkennd sem eitt öflugasta svæði heims til að stofna og stækka fyrirtæki. Það má meðal annars þakka miklu trausti, áhættusækni, sterkri rannsóknar- og nýsköpunarmenningu og háskólum sem virka sem drifkraftar þverfaglegs samstarfs. Þótt Norðurlöndin séu hvert um sig lítil skapar það einmitt tilefni til að hugsa alþjóðlegla, og þar er Japan augljós samstarfsaðili. 
Nordic Innovation House Tokyo gegnir lykilhlutverki í að byggja brú milli Japan og Norðurlanda, eins og Akiko Shiono, samfélagsstjóri Nordic Innovation House Tokyo, benti á við upphaf dagskrárinnar. Auk samnorrænna verkefna á sér einnig stað samstarf á milli Japan og einstakra norrænna landa. Sara Modig, ráðuneytisstjóri loftslags- og atvinnumálaráðuneytis Svíþjóðar lagði áherslu á lykilhlutverk sænsku ríkisstjórnarinnar í að kynna sprotafyrirtæki, nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi á grundvelli mikillar reynslu Svíþjóðar.

Japan er eitt þróaðasta markaðssvæði heims

Japan er meðal þróuðustu hagkerfa heims og gerir miklar kröfur til þeirra sem vilja komast inn á markaðinn. Þess vegna er mikilvægt að byggja upp sambönd sem byggjast á gagnkvæmum skilningi og skuldbindingu til langs tíma. Það er nokkuð sem mikil hefð er fyrir á Norðurlöndum og fellur vel að japanskri viðskiptamenningu Jafnframt er Japan mjög líkt Norðurlöndunum þegar kemur að gildum eins og trausti og sameiginlegri ákvarðanatöku. Þar að auki er Japan fjórða stærsta hagkerfi heims, sem skapar gríðarlega möguleika fyrir norræn sprotafyrirtæki til vaxtar og útþenslu.

Samstarf sem byggist á sameiginlegum gildum og styrkleikum

Af erindum og umræðum dagsins var ljóst að bæði er vilji til þess og ávinningur í því að styrkja tengsl Norðurlanda og Japan. Svæðin tvö deila sameiginlegum gildum og leggja mikla áherslu á traust, sameiginlega ákvarðanatöku og samstarf til lengri tíma. Jafnframt standa þau frammi fyrir mörgum sams konar alþjóðlegum áskorunum sem kalla á samstarf um nýjar lausnir. Allir sem tóku til máls lögðu áherslu á þessu sameiginlegu gildi og styrkleika Norðurlanda og Japan, ekki síst þegar kemur að þróun nýrrar tækni og lausna. Dagskráin samanstóð af fjórum fundum:

  • Leynisósan í norræna sprotaeldhúsinu
  • Drifkrafturinn á bak við einhyrningaverksmiðjuna
  • Háskólar sem hvatar nýsköpunar
  • Kynning á norrænni hreinni tækni
  • Fjárfestingartækifæri á Norðurlöndum fyrir japönsk fyrirtæki