EXPO 2025: Norðurlönd og Japan efla samstarf um rafhlöður framtíðarinnar

06.10.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Norden.org
Eftirspurn eftir rafhlöðum fer hratt vaxandi. Þróunin er knúin áfram af rafvæðingu, grænum umskiptum og þörfinni fyrir orkuöryggi. Um leið standa bæði Norðurlönd og Japan frammi fyrir sameiginlegri áskorun: Hvernig sköpum við traustar, sjálfbærar og nýstárlegar virðiskeðjur sem uppfylla bæði markmið í loftlagsmálum og samkeppnishæfi?

Á Nordic Battery Day í norræna skálanum á EXPO 2025 í Osaka kom í ljós hvernig Norðurlönd og Japan geta stutt hvort annað: Norðurlönd leggja til færni á sviði sjálfbærrar námuvinnslu, notkun annars konar efna, rafhlöðunotkunar og hringrásarlausna. Japan er í fararbroddi á heimsvísu í framleiðslu rafhlaðna, sjálfvirkni og hátæknirannsóknum og -þróun. Saman geta þessi tvö svæði þróað sjálfbærari aðfangakeðjur, aukið endurvinnslu, hraðað fyrir nýsköpun og sett á fót sameiginlegar menntunar- og hæfileikaáætlanir.

Nordic Innovation setti tóninn

Håkan Lind, aðalráðgjafi Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar, tók þátt í viðburðinum og lagði í ræðu sinni áherslu á að styrkur Norðurlanda felst í samstarfi:

Löndin okkar fimm eru lítil hvert og eitt, en þegar við vinnum saman verður útkoman mun stærri en nokkurt okkar gæti afrekað eitt og sér. Það er kjarni norræna samstarfsins – og það er það sem við komum með til Japan.

Håkan Lind, aðalráðgjafi Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar

Norræna nýsköpunarmiðstöðin er hluti af Norrænu ráðherranefndinni og gegnir hlutverki hvata fyrir nýsköpun og samstarf á Norðurlöndum. Undanfarin ár hefur Norræna nýsköpunarmiðstöðin meðfjármagnað Nordic Battery Collaboration, verkefni á vegum Business Finland, Business Sweden og Innovasjon Norge. Framtíðarsýnin er að gera Norðurlönd að sjálfbærasta, samkeppnishæfasta og mest nýskapandi rafhlöðuhagkerfi heims.

Frá viðræðum til aðgerða

Viðburðurinn fór fram í sömu viku og japönsk og evrópsk iðnaðarsamtök undirrituðu nýja samstarfssamninga fyrir rafhlöðugeirann. Þetta var mikilvægt skref frá viðræðum í beinna aðgerða.

Eða eins og Håkan Lind, aðalráðgjafi Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar, benti á í lokaorðum sínum:

Japan og Norðurlönd hafa sama markmið: að auka sjálfbærni, þol og nýsköpun í virðiskeðju rafhlaðna. Þetta málþing hefur verið mikilvægt skref í þá átt, en það sem mun skipta mestu máli eru fundirnir, samstarfið og verkefnin sem það leiðir af sér.

Håkan Lind, aðalráðgjafi Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar

Með Nordic Battery Day á EXPO 2025 varð það ljóst að Norðurlönd og Japan eru tilbúin til að taka næsta skref – í sameiningu.