Heimssýningin 2025 í Osaka hafin – Norðurlönd eru tilbúin að sýna sínar bestu hliðar
The Nordic Pavilion
Þegar heimsbyggðin kemur saman undir yfirskriftinni „Designing Future Society for Our Lives“ taka Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð, ásamt Norrænu ráðherranefndinni, höndum saman í norræna sýningarskálanum og sýna sameiginleg gildi, djarfar hugmyndir og lausnir sem byggjast á samvinnu í þágu betri framtíðar. Sýningin mun standa í sex mánuði og haldnir verða nokkrir samnorrænir dagar þar sem kastljósinu verður beint að framlagi okkar til hreinnar orku, lífvísinda, jafnréttismála, tölvuleikjaiðnaðarins og nýsköpunar í matvælaiðnaði svo eitthvað sé nefnt.
Það gleður mig að fá að bjóða ykkur velkomin í norræna sýningarskálann á heimssýningunni þar sem norrænu löndin sýna það besta sem við höfum upp á að bjóða þegar kemur að sjálfbærni, nýsköpun og samvinnu.
Sameiginleg þátttaka Norðurlanda hefst á degi tileinkuðum sprotafyrirtækjum sem verður liður í bæði heimssýningunni og SusHi Tech Tokyo, þar sem sjónum verður beint að styrkleikum norræna sprotaumhverfisins og hvatt verður til aukinnar samlegðar á milli Norðurlanda og Japan. Þar mun athafnafólk og frumkvöðlar frá báðum svæðum koma saman á ýmiss konar fundum, pallborðsumræðum og erindum.
Dagskráin heldur svo áfram með viðburðum helguðum orkumálum, lífvísindum og heilsu, bókmenntum, jafnréttismálum, mat og norðurslóðum, sem allir miða að því að stuðla að samtali og vekja athygli á norrænum nálgunum á alþjóðleg úrlausnarefni.