Huga ber að jafnréttismálum frá upphafi í öllum loftslagsaðgerðum

30.10.24 | Fréttir
Ljósmyndari
Eythor Arnason/norden.or
Þing Norðurlandaráðs mælist til þess að Norræna ráðherranefndin vinni að því að hugað verði að jafnréttismálum frá upphafi við allar loftslagsaðgerðir. Það var flokkahópur jafnaðarmanna sem lagði tillöguna fram og var hún meðhöndluð í norrænu velferðarnefndinni.

Þing Norðurlandaráðs 2024 fer fram í Alþingishúsinu á Íslandi. Þar samþykktu norrænir þingmenn rétt í þessu að mælast til þess að Norræna ráðherranefndin vinni að því að hugað verði að jafnréttismálum frá upphafi við allar loftslagsaðgerðir.

Hvort sem um er að ræða löggjöf eða beinar aðgerðir í loftslagsmálum þurfa allir að huga að jafnréttissjónarmiðum strax frá upphafi. Ekki eftir á eða alls ekki neitt.

Eva Lindh, formaður norrænu velferðarnefndarinnar

Loftslagsbreytingar koma ekki jafnt niður á körlum og konum

Að baki tillögunnar liggur viðurkenning Norðurlandaráðs á því að þótt Norðurlönd standi framarlega á sviði jafnréttismála þurfi að gera betur í þeim efnum þegar kemur að loftslagsmálum. Loftslagsbreytingar koma verr niður á konum en körlum, einkum í ríkjum í suðri. Einnig er loftslagsspor karla almennt stærra en kvenna. Tillögunni er ætlað að takast á við þessa skekkju. Flokkahópur jafnaðarmanna í Norðurlandaráði leggur til:  

  • að greina og meta stefnumótun og aðgerðir í loftslagsmálum út frá jafnréttissjónarmiðum
  • að kynjaskipta talnagögnum um neyslumynstur, -venjur og áhrif pólitískra ákvarðana
  • að hafa jafnréttissjónarmið í huga við gerða nýrra tillagna í loftslagsmálum
  • að taka tillit til ólíka aðstæðna karla, kvenna, drengja og stúlkna við breytingar í loftslagsmálum
  • að tryggja áhrif kvenna á öllum stigum umskipta vegna loftslagsmála, allt frá alþjóðlegum viðræðum til innlendra stjórnmála

Það var flokkahópur jafnaðarmanna sem lagði tillöguna fram og var hún meðhöndluð í norrænu velferðarnefndinni. Kjerstin Wøyen Funderud kynnti tillöguna á þinginu og undirstrikaði: 

Ég sé norrænan virðisauka í því að löndin taki saman höndum um að afla meiri þekkingar á stöðu jafnréttismála í tengslum við loftslagsmál. Eins og staðan er núna koma loftslagsbreytingar verr niður á konum en körlum – einkum í ríkjum í suðri.   

Kjerstin Wøyen, flokkahópi jafnaðarmanna

Jafnréttismál ofarlega á baugi hjá norrænu velferðarnefndinni

Hjá norrænu velferðarnefndinni taka öll málefnasvið mið af jafnréttismálum. Auk þess að hafa meðhöndlað ofangreinda tillögu hefur nefndin því rætt nýja nálgun á launajafnrétti. Hún gengur út á að fjalla um jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf í staðinn fyrir jöfn laun fyrir sömu störf. Ísland fer fyrir þessari nálgun og NIKK (Norræna upplýsingamiðstöðin um kynjafræði) hefur staðið að verkefni um þetta málefni, og fulltrúar hennar komu á fund nefndarinnar og greindu frá því.

Nánari upplýsingar má nálgast fyrir neðan.