Lýðræðið ver sig ekki sjálft – þörf á auknu samstarfi
Maria Stockhaus, varaforseti Norðurlandaráðs, flytur opnunarávarp á The European Conference on Democracy and Human Rights í Kristiansand 5. maí 2025.
Maria Stockhaus, varaforseti Norðurlandaráðs, setti ráðstefnuna ásamt Theodoros Rousopoulos, forseta Evrópuráðsþingsins og hennar hátign Mette-Marit, krónprinsessu Noregs, sem einnig tók virkan þátt í umræðum um traust, samvinnu og lýðræðislegt viðnám.
„Fyrir bara nokkrum árum hefðu fáir trúað því að við þyrftum að ræða framtíð lýðræðisins í Evrópu. Í dag er það eitt brýnasta mál sem við stöndum frammi fyrir,“ sagði Stockhaus í opnunarávarpi sínu.
Á ráðstefnunni var kastljósinu beint að ógninni af einræðisstjórnum, stríðinu í Úkraínu og minnkandi trausti á lýðræðislegum stofnunum. Bæði Norðurlandaráð og Evrópuráðið bentu á þörfina á auknu samstarfi á milli þingmanna þvert á svæði og stofnanir.
„Við þurfum öflugra evrópskt samstarf, ekki bara um öryggis- og varnarmál heldur líka um gildi. Því lýðræðið ver sig ekki sjálft,“ sagði Stockhaus.
Við þurfum öflugra evrópskt samstarf, ekki bara um öryggis- og varnarmál heldur líka um gildi. Því lýðræðið ver sig ekki sjálft.
Mikilvægur fundur á sögulegum stað
Norðurlandaráð og Evrópuráðsþingið komu í fyrsta sinn saman til tvíhliða viðræðna og er þar um að ræða nýjan og mikilvægan vettvang evrópsks þingsamstarfs.
Fundurinn var haldinn í Arkivet í Kristiansand, þar sem Gestapó hafði höfuðstöðvar sínar í síðari heimsstyrjöld en í dag er þar gagnamiðstöð um stríð, mannréttindi og lýðræði. Þessi táknræni staður undirstrikaði alvarleika fundarins og þörfina á því að vera vakandi gagnvart nýjum einræðisógnum.
Þema fundarins var meðal annars þörfin á auknu stofnanalegu samstarfi í Evrópu, stríðið í Úkraínu og ástandið í Belarús þar sem bæði lýðræði og mannréttindi eiga verulega undir högg að sækja.