Næstu skref í samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna um gervigreind
Á fundi sínum í Stokkhólmi þann 8. nóvember undirstrikuðu ráðherrar stafvæðingar frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum mikilvægi samstarfs og aukinnar samhæfingar á svæðinu bæði til þess að nýta þau gríðarlegu tækifæri sem í gervigreind felast og takast á við þau tæknilegu og siðferðislegu úrlausnarefni sem henni fylgja.
Ráðherrarnir voru sérstaklega áhugasamir um það hvernig megi tryggja að gervigreindarlausnir séu öruggar, gagnsæjar og í samræmi við norræn gildi um leið og stuðlað sé að samkeppnishæfni. Á fundinum kynntu fulltrúar opinbera geirans og einkageirans 21 tillögu sem eru afrakstur ráðstefnunnar High-level AI Readiness Forum sem fram fór í Kaupmannahöfn þann 30. ágúst.
„Við erum í miðri tæknibyltingu þar sem gervigreind hefur burði til þess að breyta stórum hluta samfélagsins. Þessar tillögur vísa veginn fyrir Norðurlönd þegar kemur að samstarfi um gervigreind. Það eykur ekki aðeins tækifæri okkar á því að hafa áhrif á tækniþróunina heldur stuðlar það jafnframt að sjálfbærari og öruggari notkun tækninnar,“ sagði Erik Slottner, ráðherra opinberrar stjórnsýslu í Svíþjóð sem fer með málefni stafvæðingar.
Við erum í miðri tæknibyltingu þar sem gervigreind hefur burði til þess að breyta stórum hluta samfélagsins. Þessar tillögur vísa veginn fyrir Norðurlönd þegar kemur að samstarfi um gervigreind.
Afrakstur ráðstefnunnar High-Level Forum on AI Readiness
Ein af tillögunum 21 gengur út á að stofna norræna-baltneska miðstöð fyrir hagnýtta gervigreind (applied AI). Grunnhugmyndin gengur út á að tengja saman samstarfsnet á sviði gervigreindar í löndunum og nýta aukið samstarf til þess að besta fjárfestingar í hverju landi fyrir sig. Slík miðstöð gæti ýtt undir ábyrga notkun gervigreindar og stuðlað að uppfyllingu framtíðarsýnar Norrænu ráðherranefndarinnar um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030.
Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, leggur áherslu á einstaka stöðu svæðisins og tækifæri þess með öflugt tæknihagkerfi sitt og traust lýðræðisleg gildi.
„Ég vil þakka fyrir mjög skýrar og gagnlegar tillögur. Í samstarfi á milli landa okkar og á milli geira felst einstakt tækifæri þegar kemur að ábyrgri notkun gervigreindar sem styrkir ekki aðeins samkeppnishæfni okkar heldur stuðlar einnig að sjálfbærri framtíð. Tillögurnar eru gott dæmi um það hvernig einkageirinn og opinberi geirinn geta nýtt styrkleika hvor annars og við hjá Norrænu ráðherranefndinni hlökkum til að vinna áfram með þessar tillögur,“ sagði Ellemann.
Tillögurnar eru gott dæmi um það hvernig einkageirinn og opinberi geirinn geta nýtt styrkleika hvor annars og við hjá Norrænu ráðherranefndinni hlökkum til að vinna áfram með þessar tillögur