Norrænu atvinnumálaráðherrarnir efla samstarfið um málefni geimsins
Því vilja ráðherrarnir standa fyrir norrænum hringborðsumræðum um málefni geimsins. Umræðurnar eru hugsaðar sem vettvangur fyrir upplýsingaskipti, umræður og ný samstarfsverkefni. Með yfirlýsingunni undirstrika ráðherrarnir mikilvægi dýpra samstarfs um geimtengda starfsemi í ljósi síbreytilegs landslags í öryggismálum
Undanfarið hefur sprottið upp líflegt og öflugt samfélag geimtengdra fyrirtækja á Norðurlöndum. Þau bætast við hinar hefðbundnu stofnanir um málefni geimsins og því má segja að nú eigum við okkur sterkt geimvistkerfi. Þetta aukna samstarf milli norrænu landanna mun efla samkeppnishæfni og öryggi Norðurlanda, auk sameiginlegs framlags okkar til málefna geimsins innan ESB
Samfélög okkar verða sífellt meira háð geimtækni. Því er mikilvægt að Norðurlönd marki sér stöðu og þrói færni sína á þessu sviði í sameiningu
Sameiginlegir hagsmunir og evrópsk áhrif
Norrænu löndin eiga þegar í samstarfi á vettvangi Geimferðastofnunar Evrópu (ESA) og geimferðaáætlunar Evrópusambandsins. Auk málefna geimsins sjá ráðherrarnir sóknarfæri til aukins samstarfs á sviði varnariðnaðar. Ráðherrarnir benda á að norrænu löndin deili margvíslegum hagsmunum í áframhaldandi þróun á geiminnviðum Evrópu. Sterkari norræn rödd á evrópskum vettvangi geti eflt nýsköpun, stutt við starfsemi fyrirtækja og tryggt að Norðurlönd leggi sitt af mörkum til þess að Evrópa hafi óháðan aðgang að geimnum.
„Þessi yfirlýsing markar nýtt upphaf fyrir norrænar umræður um málefni geimsins – og sýnir metnað til þess að efla bæði tæknilega færni svæðisins og hlutverk þess á sviði geimtengdra málefna í Evrópu og heiminum öllum,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Geimtækni er mikilvæg fyrir samfélög okkar
Gervihnattaþjónusta styður við allt frá samgöngu- og orkumálum til loftslagsvöktunar og stafrænna samskipta. Þetta á einkum við á norðurslóðum, þar sem geimtækni getur gegnt lykilhlutverki í loftslagseftirliti. Nánara samstarf getur leitt til sparnaðar í auðlindanýtingu, aukinnar samkeppnishæfni og hagvaxtar. Með því að þróa lausnir sem þessar geta norrænu löndin gert samstarfið snurðulausara og skilvirkara.
Við, atvinnumálaráðherrar norrænu landanna, staðfestum skuldbindingu okkar til að auka norrænt samráð um málefni geimsins. Aukið samstarf eflir samkeppnishæfni okkar og stuðlar að þróun svæðisins, sem er nauðsynlegt vegna breyttra öryggisaðstæðna.
Norrænu löndin vinna nú þegar saman að því að þróa geiminnviði, í fyrsta lagi í gegnum starfsemi Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) og geimáætlun ESB. Einnig eru tækifæri til aukins samstarfs um málefni geimsins innan varnarmálageirans.
Upplýsingar og þjónustur sem verða til í gegnum geimstarfsemi styðja innviði á ýmsum sviðum samfélagsins. Geimþjónusta getur bætt ýmsa þætti samfélagslegrar þjónustu, aukið skilvirkni þeirra og skapað nýja notkunarmöguleika. Við stafvæðingu þjónustuþátta verða jarðfjarkannanir, tíma- og staðsetningargögn og gegnumsmeygur tengjanleiki grunnstoðir fyrir þróun nýrra möguleika. Gervihnattaþjónusta er einnig mikilvæg fyrir þróun norðurskautssvæðisins, meðal annars með vöktun loftslagsbreytinga.
Þar sem margir mikilvægir hlutar innviðanna og samfélagsþátta eru þegar í dag að miklu leyti háðir geimþjónustu er mikilvægt að tryggja samfelldri slíkrar þjónustu við sérstakar aðstæður og raskanir.
Norðurlöndin eiga marga sameiginlega hagsmuni að því að þróa geiminnviði í Evrópu og nýta aðgengileg gögn og þjónustu í samfélögum okkar. Við teljum að reglulegt samráð milli landa okkar getur gagnast okkur við að efla rödd okkar á evrópskum vettvangi, styðja fyrirtæki við nýsköpun og stuðla að þróun mismunandi þátta í samfélögum okkar.
Nú aukum við metnað okkar til að leggja okkar af mörkum til sjálfstæðrar geimgetu Evrópu, svo sem til aðgangs að geimnum og smíði og rekstur gervihnatta.
Við erum sannfærð um að nánara samstarf og samráð geti leitt til sparnaðar, stutt nýsköpun og samkeppnishæfni í geimiðnaði okkar og stuðlað að hagvexti. Svipaðar tæknilausnir í norrænu löndunum ættu að greiða fyrir hagnýtu samstarfi og auka skilvirkni þess.
Þess vegna leggjum við áherslu á að auka norrænt samráð um málefni geimsins með því að halda norrænar hringborðsumræður um geimmál. Þeim vettvangi er ætlað að gegna hlutverki ramma utan um upplýsingaskipti, umræður og aðgerðir sem leiða til frekara samstarfs innan geimgeirans. Umræður um smáatriði og form samstarfsins munu halda áfram í norrænu embættismannanefndinni um atvinnumál.
Sakari Puisto, Finnlandi
Jesper Josefsson, Álandseyjum
Ebba Busch, Svíþjóð
Logi Einarsson, Íslandi
Cecilie Myrseth, Noregi
Morten Bødskov, Danmörku
Christina Egelund, Danmörku
Margit Stórá, Færeyjum