Norðurlandaráð á COP29: Þingmenn verða að axla ábyrgð á að loftslagsmarkmiðum verði náð
Ola Elvestuen på COP29
Verða að axla ábyrgð
Kjörnir þingmenn fara með löggjafarvaldið og ráða einnig yfir fjárlögum landanna og bera því ríka ábyrgð á því að gripið sé til raunverulegra aðgerða í loftslagsmálum. Himanshu Gulati, norskur þingmaður í Norðurlandaráði, bendir á að um leið verði að sýna auðmýkt.
„Við verðum að hafa í huga að skoðanir almennings eru ólíkar og við verðum að vinna með þá þætti sem sameina okkur. Margt fólk hefur látið í ljós áhyggjur af áhrifum umskiptanna á störf þess og heimilisfjárhag,“ segir hann.
Krista Mikkonen, finnskur þingmaður í Norðurlandaráði, segir að þingmenn beri einnig ábyrgð á því að stjórnvöld standi við gefin loforð.
„Við verðum að sjá til þess að ríkisstjórnirnar gefi okkur skýrslu um hvað þær geri til að sporna við loftslagsbreytingum. Að mínu mati verðum við að minna þær á ábyrgð sína og ganga úr skugga um að aðgerðum verði hraðað, segir hún.
Einróma samstaða mikilvæg
Malini Mehra frá Globe international, bendir á að sögulega séð hafi loftslagsstefna byggt á samstöðu þvert á flokka.
„Um leið og loftslagsstefna verður flokkspólitískt mál á vinstri-hægri ásnum þyngist róðurinn. Pólitíska andrúmsloftið í Bandaríkjunum er dæmi um þetta, segir hún.
Þingmenn Norðurlandaráðs eru sammála um að mikilvægt sé að tengja umræðuna við það sem skiptir máli í daglegu lífi almennings til þess að breið samstaða náist um aðgerðir í umskiptunum.
„Efnahagsmálin eru það sem skipta kjósendur mestu máli – við verðum að geta tengt loftslagsmálin við daglegt líf og fjárhag fólks,“ segir Himansu Gulati.
Krista Mikkonen segir að þingmenn verði einnig að nýta sér sýnileika sinn til þess að útskýra hvers vegna það sé allra hagur að bregðast strax við.
„Loftslagsmálin hafa áhrif á allt, segir hún.
Ola Elvestuen, norskur þingmaður í Norðurlandaráði, dregur saman hugmyndir sínar um hvernig best sé staðið að því að leysa loftslagsmálin á þingi:
„Segðu það sem þú hugsar, gerðu það sem þú segir og ekki hætta fyrr en því er lokið.