Norðurlandaráð þrýstir á um ráðherranefnd um samgöngumál
Kjell-Arne Ottosson, Nordisk Råds temasession 2025
Norðurlandaráð hefur í mörg ár unnið að því að stofnuð verði norræn ráðherranefnd um samgöngumál og samstarf um innviði þvert á landamæri verði aukið. Samstarf á landi, sjó og í lofti, auk stafræns samstarfs í samgöngumálum, myndi ekki aðeins styrkja svæðið efnahagslega heldur einnig stuðla að sjálfbærari þróun og betri viðbúnaði á krísutímum, að mati Norðurlandaráðs.
Tillögunni miðar ekki neitt áfram
Norræna hagvaxtar- og þróunarnefndin ræddi þetta mál í Helsinki ásamt Anders Adlercreutz, samstarfsráðherra Norðurlanda í Finnlandi. Í stjórnarsáttmála finnsku ríkisstjórnarinnar er fjallað um mikilvægi þess að styðja við áformin um ráðherranefnd en nefndarmenn gátu ekki séð að tillögunni hefði miðað áfram.
„Við bjuggumst við því að ráðherrann stæði við finnska stjórnarsáttmálann en hann sagði að þetta ætti ekki lengur við. Andstaðan er greinileg og í því felst ákveðið virðingarleysi því Norðurlandaráð var og er alveg samstíga í því að kalla eftir stofnun ráðherranefndar um innviði,“ segir Kjell-Arne Ottosson, formaður nefndarinnar.
Ég sé ekki fyrir mér að við gefum neitt eftir þar sem stuðningur er einnig mikill á meðal margra aðila á sviði innviðamála um öll Norðurlönd.
Víðtækur stuðningur
Öll lönd, flokkahópar og þingmenn Norðurlandaráðs standa á bak við ákvörðunina.
„Ég sé ekki fyrir mér að við gefum neitt eftir þar sem stuðningur er einnig mikill á meðal margra aðila á sviði innviðamála um öll Norðurlönd. Þeir sjá að við verðum að formgera samstarfið um innviði til þess að standa betur að vígi hvað sem á dynur,“ segir Kjell-Arne Ottosson.
Lykilinn að því að uppfylla framtíðarsýnina
Tillagan um sérstaka ráðherranefnd um samgöngumál grundvallast á þörfinni á því að styðja við græn umskipti innan allra samgöngumáta og byggja sameiginlega upp innviði til þess að bæta tengingu Norðurlanda við Evrópu. Nú þegar öll norrænu löndin eru orðin aðilar að NATO hefur þörfin á þróun og samhæfingu innviða einnig aukist.
Ef forsætisráðherrunum er alvara með framtíðarsýninni verða þeir að fara að láta verkin tala, annars eru þetta bara innantóm orð.
Norðurlandaráð undirstrikar að formlegt samstarf sé einnig lykillinn að því að uppfylla framtíðarsýn norrænu landanna um samþætt og sjálfbær Norðurlönd.
„Ef forsætisráðherrunum er alvara með framtíðarsýninni verða þeir að fara að láta verkin tala, annars eru þetta bara innantóm orð. Samstarfsráðherrarnir hafa nú fengið öflugra umboð, sem er gott, en allir ráðherrar verða að vinna að þessum málum ef okkur á að miða áfram. Við verðum að standa saman og svo sjáum við hver næstu skref Norðurlandaráðs verða,“ segir Kjell-Arne Ottosson.