Norðurlönd halda leiðtogafund um samheldni á ólgutímum

24.10.25 | Fréttir
Riksdagen Stockholm
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Stokkhólmur verður höfuðborg Norðurlanda í viku þegar Norðurlandaráð kemur saman í Ríkisdeginum, þjóðþingi Svía, 27.–30. október. Þar hittast þingmenn, forsætisráðherrar, ráðherrar og sérfræðingar hvaðanæva af Norðurlöndum til að ræða þróun norræns samstarfs og hvernig megi styrkja félagsskapinn á vályndum tímum. Aðalgestur verður Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Þema þingsins í ár er: „Samstíga Norðurlönd – norrænt notagildi og samheldni á ólgutímum.“ Dagskrármálin eru brýn og þungvæg. Hvernig stöndum við vörð um öryggi borgaranna? Hvernig varðveitum við traustið og lýðræðið? Hvernig byggjum við framvegis á þeim gildum sem gera Norðurlönd að einu traustasta og sjálfbærasta svæði heims? 

 

Leiðtogafundur Norðurlandaráðs og norrænu forsætisráðherranna verður haldinn daginn sem þingið er sett, 28. október. Þar tekur einnig þátt Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem ávarpa mun fundinn.

 

Þingið snýst þó um meira en stjórnmál á æðstu stöðum. Það er einnig vettvangur samræðu, samvinnu og innblásturs. Þinghúsið ómar af umræðum um margvísleg mál eins og loftslagsmál, velferðarmál, mennta- og menningarmál og græn umskipti. Í vikunni halda flokkahópar og nefndir fundi sína auk þess sem efnt verður til umræðna um ýmis mikilvæg mál á þingfundi, meðal annars um utanríkis- og varnarmál með þátttöku viðkomandi ráðherra. 

 

Á þriðjudagskvöldið verður menningarlegur hápunktur vikunnar, það er að segja afhending verðlauna Norðurlandaráðs á sviði bókmennta, barna- og unglingabókmennta, tónlistar, kvikmynda og umhverfismála. Stina Ekblad, leikkonan finnlandssænska, stýrir viðburðinum sem verður í beinu streymi frá „Andrakammarsalen“ í þinghúsinu. 

 

Norðurlandaráðsþingin eru haldin árlega og eru viðamesti samráðsvettvangur norrænna þjóðþinga og ríkisstjórna. Á lokadeginum greiða þingmennirnir atkvæði um tilmæli til Norrænu ráðherranefndarinnar og ríkisstjórnanna. Þessar ákvarðanir varða allt frá samstarfi þvert á landamæri til ákveðinna umbóta í daglegu lífi Norðurlandabúa.

 

Dagskráin er að miklu leyti opin almenningi og fjölmiðlum og fylgjast má með henni í beinni útsendingu eða upptöku á norden.org og á heimasíðu sænska þingsins. Fylgist með á norden.org og öðrum miðlum Norðurlandaráðs til að missa ekki af mikilvægum uppfærslum og fréttum frá Stokkhólmi.