Norðurlönd og Eystrasaltsríkin standa þétt saman í ESB og Evrópu í þágu lýðræðis og öryggis

18.02.25 | Fréttir
Nordic Council Baltic Assembly European parlament in Brussel

Nordic Council Baltic Assembly European parlament in Brussel

Ljósmyndari
Thomas Fraser
Öryggismál og staða Evrópu var efst á baugi á öryggisráðstefnunni í München um helgina en á mánudag komu þingmenn frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum saman í Brussel til að efla samstarf um varnir, öryggi og pólitísk áhrif í ESB. Í tímum þegar stríð geisar í Evrópu og spenna fer vaxandi í heimsmálunum og alþjóðaviðskiptum skiptir samstarf æ meira máli.

Norðurlandaráð og Eystrasaltsþingið stóðu saman að fundinum þar sem norrænir og baltneskir þingmenn Evrópuþingsins komu saman.

„Við viljum öll að við nýtum okkur aukna samstöðu Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna, einnig á vettvangi ESB,“ sagði Jorodd Asphjell, fyrrverandi forseti Norðurlandaráðs og þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins (BSPC).

„Rétt eins og nágrannar okkar við Eystrasaltið og aðrir í Evrópu veldur staðan í öryggismálum okkur miklum áhyggjum. Það verður eftir sem áður helsta forgangsmál Norðurlandaráðs að treysta sameiginlegt öryggi okkar,“ hélt hann áfram. Jorodd Asphjell á sæti og norska Stórþinginu og situr í forsætisnefnd Norðurlandaráðs.

Þörfin á auknu samstarfi til að standa vörð um lýðræðisleg gildi var einnig áberandi á fundinum. Vaxandi áhyggjur eru af einræðisstjórnum og veikingu lýðræðislegra gilda, réttarríkisins og mannréttinda.

Í stefnu Norðurlandaráðs í alþjóðamálum sem samþykkt var árið 2023 er áhersla lögð á samstarf við aðila sem deila svipuðum gildum til að efla lýðræði, frið og mannréttindi. Fundurinn í Brussel var liður í þeirri vinnu og stuðlar að traustara sambandi við Eystrasaltsþingið og Evrópuþingið.

Fyrrverandi forseti Norðurlandaráðs undirstrikaði að lokum að aukið samstarf Norðurlanda, Eystrasaltsríkjanna og ESB snúist ekki bara um okkar eigið öryggi heldur einnig stuðning við þá sem berjast fyrir frelsi og lýðræði.

Við sem stjórnmálamenn gegnum líka mikilvægu hlutverki við að minna almenning á hvers vegna það skiptir sköpum að styðja Úkraínu og hvað er í húfi og við þurfum að vera afdráttarlaus um að varanlegir friðarsamningar séu ekki mögulegir án þess að bæði Úkraína og Evrópa eigi sæti við samningaborðið.

Jorodd Asphjell, forsætisnefnd Norðurlandaráðs

Eystrasaltsþingið og Evrópuþingið:

Aukið samstarf við bæði Eystrasaltsþingið og Evrópuþingið er hluti af alþjóðastefnu Norðurlandaráðs.

Stefnan kveður á um stefnumarkandi markmið Norðurlandráðs í alþjóðamálum til lengri tíma. Markmið stefnunnar eru leiðarstef alþjóðastarfs Norðurlandaráðs.