Norðurlönd vilja öflugt alþjóðlegt bandalag um jafnréttismál og jöfn réttindi
Á sama tíma og jafnrétti kynjanna og réttindi hinsegin fólks verða verða æ pólitískari mál og réttindi sem náðst hafa með mikilli baráttu eru jafnvel dregin til baka víða um heim standa norrænir ráðherrar jafnréttismála og málefna hinsegin fólks fast á því að norrænu löndin standi áfram vörð um þessi norrænu grundvallargildi á alþjóðavettvangi.
Þetta kom skýrt í ljós þegar ráðherrarnir hittust í Tavastehus í Finnlandi þann 7. október til að ræða vaxandi alþjóðlegar áskoranir.
Þar ákváðu ráðherrarnir að norrænu löndin skyldu sameiginlega afla víðtæks alþjóðlegs stuðnings við jafnrétti og jöfn réttindi, að efla skyldi möguleika norrænna sendiráða á að vinna saman og að standa hlið við hlið hjá SÞ með þau skilaboð að norrænu löndin lofi að bakka ekki.
„Þótt ýmislegt veki áhyggjur í heiminum í dag breytir það ekki því að norrænu löndin munu áfram berjast fyrir jafnrétti og jöfnum réttindum. Þetta eru grundvallarmannréttindi og við hvikum ekki frá þeim. Í formennskutíð Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni höfum við ráðist í ýmis verkefni til að styrkja sameiginlega rödd Norðurlanda í þágu framfara og það gleður okkur að vinnan skuli halda áfram,“ segir Sanni Grahn-Laasonen, velferðarráðherra Finnlands.
Samstarf við Evrópuráðið
Michael O’Flaherty, mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, tók einnig þátt í fundinum og greindi frá núverandi áskorunum í Evrópu vegna þverrandi stuðnings við grundvallarmannréttindi. Í kjölfarið ákváðu ráðherrarnir að á næsta ári skyldi Norræna ráðherranefndin ásamt Evrópurráðinu halda árlega evrópska ráðstefnu um réttindi hinsegin fólks.
„Norrænu löndin hafa unnið saman að jafnrétti kynjanna í hálfa öld og árið 2020 hófum við einnig samstarf um jöfn réttindi hinsegin fólks. Jafnrétti og jöfn meðferð eru grunngildi á Norðurlöndum og þess vegna verða norrænu löndin að snúa bökum saman á þessum krefjandi tímum,“ segir Arsim Zekaj, félags- og heilbrigðisráðherra Álandseyja.
Á árinu 2025 hefur Norræna ráðherranefndin um jafnréttismál, undir formennsku Finnlands og Álandseyja, sérstaklega ráðist í aðgerðir til að mæta vaxandi alþjóðlegum áskorunum, fyrirbyggja kynbundið ofbeldi, efla sameiginlega norræna þekkingu á heilsu og velferð hinsegin fólks, stuðla að jöfnum launum og kortleggja og takast á við áskoranir karla í jafnréttismálum.
Katarina Lundahl, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Lubna Jaffery, Sanni Grahn-Laasonen, Karen Ellemann